Staðan er nú sú að leiðtogar Evrópu vilja halda áfram stríði þótt þeir hafi ekki mannskap til að fórna, ekki vopn til að nota né fé til að fjármagna.
Gunnar Smári Egilsson.
Facebook: Gunnar Smári skrifaði:
Nú segir Selenskí að Úkraínumenn sætti sig við að komast ekki í Nató en vilji ganga í ESB ekki seinna en 2027. Það mun þá taka við sem innihaldslaust loforð Evrópu til Úkraínumanna, algjörlega óraunhæft tal út í loftið sem allir vita að mun aldrei verða staðið við. Úkraína stenst ekkert af þeim kröfum sem gerðar eru til aðildarríkja ESB. Ríkissjóður er rekinn með of miklum halla og skuldar of mikið, landið er of spillt, stofnanir of veikar og fyrirsjáanlegt að Úkraína muni soga til sína alla sjóði Evrópusambandsins næstu árin og áratugina (og magna enn frekar upp landlæga spillingu), sem mun valda því að fátækari ríkin í sambandinu muni koma í veg fyrir inngöngu Úkraínu í ESB (vitandi að það mun leiða til þess að fjárstreymi frá Brussel til þeirra landa mun þurrkast upp). Það á að nota loforð um inngöngu í ESB sem táknrænt markmið, því miður vegna þess að viljinn til að styðja við raunverulega uppbyggingu Úkraínu eftir hörmungar síðustu ára og áratuga, er í reynd lítill ef nokkur.
Okkur var sagt að Bandaríkin væru vinir okkar.
Stjórnmál Evrópu eru æ meira byggð á markaðssetningu á hugarburði, flakka frá einni vitleysunni til þeirrar næstu. Því var haldið fram að vestræn vopn væri svo snjöll að Úkraínumenn myndu vinna Rússa á vígvellinum. Okkur var sagt að efnahagsþvinganir myndu beygja Rússland í duftið. Því var haldið fram að rússneskt efnahagslíf væri við það hrynja, stuðningur Rússa við Pútín myndi hverfa og mórallinn í rússneska hernum leiða til skipsbrots. Við vorum að styðja réttmæta kröfu Úkraínumanna um aðild að Nató (sem í ljós er komið að var líklega aldrei möguleg). Okkur var sagt að Bandaríkin væru vinir okkar. Því var haldið fram að Evrópa gæti háð hið réttmæta stríð ókeypis, með mannslífum Úkraínumanna og vopnum og fé frá Bandaríkjamönnum. Þegar hvort tveggja var uppurið var því haldið fram að Evrópa gæti haldið stríðinu gangandi með því að eigna sér rússneska gjaldeyrissjóði sem geymdir eru í Belgíu (og Belgar munu aldrei leyfa að verða yfirteknir, enda þyrftu þeir þá að endurgreiða Rússum peninginn samkvæmt alþjóðalögum).
Staðan er nú sú að leiðtogar Evrópu vilja halda áfram stríði þótt þeir hafi ekki mannskap til að fórna, ekki vopn til að nota né fé til að fjármagna. Og þeir reyna því að búa eitthvað til að fela ósigur sinn og að allt sem þeir hafa sagt undanfarin bráðum fjögur ár, eiginlega alveg frá 2014 og meira að segja frá 2008 (þegar Úkraínumönnum var lofað að landið væri á leið í Nató) hefur frá upphafi verið arfa vitlaus stefna sem hefur grafið undan öryggi Evrópu.
Það er kominn tími til að íhuga orð Angelu Merkel, um að það hefði mátt koma í veg fyrir þetta allt með samningum og samskiptum við Rússa. En því var hafnað, Evrópa ætlaði að svínbeygja Rússland með styrk sínum. Sem í ljós hefur komið að er enginn. Og getan til að ná saman styrk álfunnar er heldur ekki til staðar. Leiðtogar Evrópu í dag eru ófærir um að móta stefnu byggða á styrk, vilja frekar reka stefnu byggða á óskhyggju og innihaldslausu blaðri.