Umræðan/Facebook: Oddný Harðardóttir, fyrrum þingmaður, ráðherra og formaður Samfylkingarinnar, skrifaði:
„Bandaríkin ráðast inn í Venesúela. Hafið er innrásarstríð líkt og þegar að Rússland réðst inn í Úkraínu. Slíkt ættu Íslendingar alltaf að fordæma. Alþjóðalög eru brotin og það skiptir ekki máli hvaða ríki það gerir. Ísland má ekki slá úr og í við þessar aðstæður heldur tala afgerandi gegn slíkum innrásum og brotum á alþjóðalögum og samþykktum.“