
Birgir Dýrfjörð skrifaði:
Þannig var ein af mörgum auglýsingum úr orðakamri neikvæða fólksins. Henni var ætlað að ýta undir þann róg að þau sem vildu kanna hvort einhver von um betri hag almennings gæti falist í viðræðum við samtök Evrópuríkja. Þau væru reiðubúin að selja Ísland.
Þessi ógeðfellda auglýsing var sérstakt eftirlæti bænda, sem telja sig hafa erfðabornar skyldur til að koma í veg fyrir að útlendingar eignist íslenska jörð. Þeir lögðu það á sig áður en heyönnum lauk að boða auka landsfund í samtökum bænda í þeim tilgangi að taka af fólki þann rétt að kanna mögulegan ábata af samningi við samtök Evrópuþjóða.
Það er stutt í að vatn og græn orka verði jafn eftirsótt og olía.
Að taka af fólki þann meðfædda rétt er skelfileg birtingarmynd fasisma og ævarandi smán fyrir íslenska bændastétt.
STAÐREYNDIN
Á forsíðu Morgunblaðsins 3. sept. 2026 er mynd af lystisnekkju sem kostar milljarða og heitir því táknræna nafni Sherpa. Í pólitík er nafnið Shérpar haft um þá sem ryðja brautina fyrir samninga.
Í texta Moggans segir orðrétt; „snekkjan Shérpa er í eigu auðmannsina Jims Ratcliffes, EINS STÆRSTA JARÐEIGANDA LANDSINS“ Takið eftir: „STÆRSTA JARÐEIGANDA LANDSINS“.
Hvernig hefur þessi maður orðið einn stærsti jarðeigandi Íslands? Svarið er einfallt, hann keypti landið.
Nú er spurt. Hverjir hafa selt útlendingum Ísland til ævarandi eignar? Hverjir sviku og seldu ættland borinna og óborinna Íslendinga – svarið er grátlegt, það voru bændur.
Það hefði verið nær sanni að bændur hefðu auglýst „Ísland til sölu” – já takk“.
Er snekkjan Shépar kannski grunnbúðir þeirra sem ætla sér að klífa og eignast íslensku fjöllin og vindinn og íslensku árnar. Það er stutt í að vatn og græn orka verði jafn eftirsótt og olía.