- Advertisement -

Íslendingar flýja kröpp kjör hér á landi

„Að sama skapi fæli of mik­ill jöfnuður menntað fólk frá Íslandi.“

„Það eru gjarn­an hærri laun í út­lönd­um fyr­ir fólk með markaðsvæna mennt­un. Á Norður­lönd­um eru það fjölþjóðleg fyr­ir­tæki sem bjóða bestu starf­stæki­fær­in. Slíkt skort­ir hér­lend­is að ein­hverju leyti.“

Þetta stendur í Mogga dagsins og er bein tilvitnun í Ásgeir Jónsson hagfræðing við Háskóla Íslands.

Í sömu fréttaskýringu stendur þetta: „Á hinn bóg­inn fluttu um 1.130 fleiri ís­lensk­ir rík­is­borg­ar­ar frá land­inu á þess­um árum en frá því. Sú staðreynd vek­ur at­hygli með hliðsjón af því að síðustu ár hafa verið ein­hver þau hag­felld­ustu í sög­unni m.t.t. meðaltals kaup­mátt­ar og vinnu­fram­boðs.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Hér talaði sérfræðingur Hagstofunnar.

Lesum aðeins betur. „Ásgeir bend­ir á að mik­ill launa­jöfnuður á Íslandi valdi því að eft­ir­sókn­ar­vert sé fyr­ir ófag­lærða út­lend­inga að kom­ast í störf á Íslandi. Síðustu ár hafi einnig orðið til mörg störf í ferðaþjón­ustu og bygg­ing­ariðnaði á Íslandi fyr­ir ófag­lært fólk. Að sama skapi fæli of mik­ill jöfnuður menntað fólk frá Íslandi.“

Hann segir sem sagt að hér ríki of mikill launajöfnuður og hann reki menntað fólk frá landinu. Nú er ekki víst að margir, hvað þá allir, séu honum sammála.

„Rúm­lega 6.500 fleiri er­lend­ir rík­is­borg­ar­ar fluttu til lands­ins í fyrra en fluttu frá land­inu. Það er ann­ar mesti aðflutn­ing­ur er­lendra rík­is­borg­ara, um­fram brott­flutta, í sög­unni. Metárið er 2017, þegar um 7.900 fleiri er­lend­ir rík­is­borg­ar­ar fluttu til lands­ins en frá því.

Þetta varð ljóst þegar Hag­stof­an birti bráðabirgðatöl­ur um bú­ferla­flutn­inga á fjórða fjórðungi í fyrra. Fluttu þá 2.110 er­lend­ir rík­is­borg­ar­ar til lands­ins en 1.200 frá því. Sam­tím­is fluttu um 470 ís­lensk­ir rík­is­borg­ar­ar til og frá land­inu og er sá flutn­ings­jöfnuður því hlut­laus.

Fjölgaði lands­mönn­um milli ára úr 348.450 í 357.050, eða um 8.600.

Sé litið til ár­anna 2015-18 hafa um 21.360 fleiri er­lend­ir rík­is­borg­ar­ar flutt til lands­ins en frá því og á sú þróun mik­inn þátt í íbúa­fjölg­un

Er aðflutn­ing­ur­inn síðustu ár orðinn um­tals­vert meiri en á þenslu­ár­un­um fyr­ir efna­hags­hrunið. Það vaxt­ar­skeið var auðvitað styttra,“ segir í Mogganum.

Úr Mogganum í dag.

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: