Sigurður Gylfi Magnússon prófessor í sagnfræði skrifaði:
„Er Ísland eitt í heiminum? Það er spurningin sem brennur á mörgum og það ekki að ósekju. Ég held að við ættum að hugsa okkur tvisvar um áður en við kjósum að standa ein og óstudd í heiminum í dag. Nýjustu fréttir af forseta Bandaríkjana á fundi NATO í dag koma ekkert á óvart. Hann vill en taka yfir vini okkar á Grænlandi og innlima þá í USA. Las mjög sláandi grein í The New Yorker sem kom út nýlega þar sem rakið er að um er að ræða þaulhugsað plan af hálfu Trump og hans stuðningsmanna. Ég held að Íslendingar verði að hugsa sinn gang, hvað sem Ólafur Ragnar Grímsson segir!“