- Advertisement -

„Kann að vera að þeir fjármunir sem SÁÁ fékk í unglingastarfið séu að fara í eitthvað annað?“

„Af hverju er unga fólkið ekki að nýta sér þjónustu SÁÁ?,“ spyr Olga Ingólfsdóttir, sem er félagsmaður í SÁÁ.

Hún segir að „á Sjúkrahúsinu Vogi hefur unglingum sem eru 19 ára og yngri fækkað mjög mikið undanfarin ár. Frá árinu 2000 til ársins 2018 voru innritanir hjá þessum aldurshópi um 200 til 300 á ári hverju. Í samningum milli Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ um Vog segir að lágmarksfjöldi innlagna á legudeild fyrir ungmenni skuli vera 205 árlega og lágmarks fjöldi legudaga skuli vera 2.050.“

Anna Hildur Guðmundsdóttir tók við sem formaður SÁÁ í febrúar á þessu ári.

Olga tekur fram að „ef SÁÁ – sem verksali – uppfyllir ekki þennan samning á hverju 12 mánaða tímabili skulu greiðslur skerðast um 80% fyrir hvern legudag. Fyrir árið 2020 voru legudagar 860 og því vantaði 1.190 legudaga upp á svo að SÁÁ uppfyllti samninginn. Þrátt fyrir þessa miklu fækkun legudaga þá fékk SÁÁ tímabundna 50 milljóna króna fjárveitingu á fjárlögum ársins 2020 til að standa straum af viðbótarkostnaði fyrir árin á undan.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Hún segir að fjárveitingin hafi fyrst og síðast hafa verið lið í að efla enn frekar þjónustu við ungmenni hjá SÁÁ.

„Vitað er að besta forvarnarstarfið er að auka aðgengi barna og ungmenna að snemmtækri þjónustu í áfengis- og vímuefnameðferð, en eitthvað virðist hafa brugðist hjá SÁÁ þegar kemur að þjónustu við unga fólkið okkar. Covid hefur mögulega haft einhver áhrif en það er athyglisvert að á sama tíma fjölgaði stöðugildum hjá SÁÁ nokkuð, það var þrátt fyrir að dregið hafi úr innlögnum unga fólksins.“

Olgu virðist gruna að fjármunirnir áðurnefndu hafi ekki farið þangað sem þeir áttu að fara, og spyr því:

„Kann það að vera að þeir fjármunir sem SÁÁ fékk aukalega og áttu að fara í unglingastarfið séu að fara í eitthvað annað?“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: