- Advertisement -

Kvartað og kveinað

Það væri nær ef Sjáfstæðisflokkurinn sýndi þeim sem standa í tiltektinni þakklæti í stað þess að vera að þvælast fyrir verkstjórninni.

Sigurjón Þórðarson.

Sigurjón Þórðarson, þingmaður í Flokki fólksins, skrifar:

Mig rekur ekki minni til þess að nokkur af fyrirrennurum Guðrúnar í forystu Sjálfstælfstæðisflokksins hafi beitt þeirri baráttuaðferð að skæla og væla. Það eru greinilega nýjir tímar og vinnubrögð í flokknum, en í neðangreindri grein ber formaðurinn sig illa yfir því að núverandi ríkisstjórn sé að hrinda í verk áformum m.a. um brottfararbúðir og betri stjórn á landamærunum, án þess að þakka sérstaklega fyrir það.

Umræddar brottfararbúðir og skarpari úrræði er að finna á öllu Schengensvæðinu og því engin ný uppfinning. Það er rétt að fara yfir ábyrgð Sjálfstæðisflokksins í þessum málaflokki en hann hefur farið með útlendinga- og lögreglumál í landinu að mestu frá árinu 2013 til 21. desember sl. Á þessum tíma voru undir forystu flokksins og jú Sigmundar Davíðs samþykkt lög sem boruðu gat á skilvirkni kerfisins og bjuggu til gríðarlegan kostnað.

Hvernig sem á málið er litið þá voru það verk Sjálfstæðisflokksins sem lögðu grunninn að því öngþveiti sem skapaðist í málaflokknum og hafði mörg ár til að leysa úr, en kom engu í verk. Það væri nær ef Sjáfstæðisflokkurinn sýndi þeim sem standa í tiltektinni þakklæti í stað þess að vera að þvælast fyrir verkstjórninni.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: