- Advertisement -

Lægra launaðir ríkisstarfsmenn berjast meðan aðallinn fær hækkanir sjálfkrafa

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, skrifaði:

Það er kaldhæðnislegt á sama tíma og upplýst er um umtalsverðar krónutöluhækkanir til handa æðstu stjórnendum ríkisins þá náum við ekki saman í viðræðum okkar við samninganefnd ríkisins til handa tekjulægsta fólkinu sem starfar hjá ríkinu.

Samninganefnd SGS hefur fundað 11 sinnum með samninganefnd ríkisins og enn ber mikið á milli aðila og í ljósi þess ákvað Starfsgreinasamband Íslands að vísa deilunni til ríkissáttasemjara eftir árangurslausan fund í dag.

Enda telur Starfsgreinasamband Íslands (SGS) einsýnt að ekki verði komist lengra í viðræðum við samninganefnd ríkisins vegna endurnýjunar kjarasamnings SGS og fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs sem rann út 31. mars 2023.

Samningsaðilar hafa á undanförnum vikum átt fjölmarga fundi eins og áður hefur komið fram, þar sem SGS hefur komið kröfum sínum málefnalega á framfæri við samninganefnd ríkisins, en án árangurs.

Í ljósi þess hversu langt er á milli aðila lítur SGS svo á að ekkert annað sé í stöðunni en að vísa deilunni til ríkissáttasemjara. Jafnframt var farið fram á það við ríkissáttasemjara að hann boði til fundar eins fljótt og auðið er, enda óásættanlegt að launafólk bíði mánuðum saman eftir sanngjörnum kjarabótum.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: