„Ég óska öllum þeim sem koma að veiðunum og vinnslunni góðs gengis á komandi vertíð og vona að hún verði bæði farsæl og arðbær fyrir starfsfólkið, fyrirtækið og þjóðarbúið allt.“
Vilhjálmur Birgisson.
Hvalveiðar: Vilhjálmur Birgisson á Akranesi er dggur stuðningsmaður hvalveiða. Hann skrifaði:
„Það eru afar jákvæð tíðindi að nú stefni í að hvalveiðar hefjist á næstu dögum. Þessar veiðar skipta félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness gríðarlega miklu máli enda er áætlað að allt að 200 manns komi að veiðum og vinnslu hvalaafurða á vertíðinni.
Hvalveiðarnar skapa verðmæt störf og mikilvægar tekjur fyrir fjölda fjölskyldna. Um er að ræða verkefni þar sem unnið er allan sólarhringinn yfir vertíðina og því eru tekjumöguleikar starfsfólks mjög góðir. Fyrir marga félagsmenn okkar geta þessar veiðar skipt sköpum þegar kemur að afkomu þeirra og fjölskyldna þeirra.
Ég óska öllum þeim sem koma að veiðunum og vinnslunni góðs gengis.
Við eigum að nýta þær auðlindir sem landið býr yfir á ábyrgan og sjálfbæran hátt. Hvalveiðar eru hluti af þeirri nýtingu og stuðla að verðmætasköpun, gjaldeyrisöflun og atvinnu um allt land. Það er mikilvægt að ákvarðanir um nýtingu auðlinda byggist á vísindalegum grunni og faglegri ráðgjöf. Veiðarnar eru stundaðar samkvæmt ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og innan þess lagaramma sem Alþingi hefur sett.
Við eigum ekki undir neinum kringumstæðum að láta öfgafullar skoðanir eða þrýstihópa koma í veg fyrir lögmæta atvinnustarfsemi sem byggir á vísindum, skýrum reglum og sjálfbærri nýtingu auðlinda. Hagsmunir íslensks atvinnulífs, starfsfólks og þeirra samfélaga sem reiða sig á þessi störf verða að vera í forgangi.
Ég óska öllum þeim sem koma að veiðunum og vinnslunni góðs gengis á komandi vertíð og vona að hún verði bæði farsæl og arðbær fyrir starfsfólkið, fyrirtækið og þjóðarbúið allt.“
