- Advertisement -

Lífeyrissjóðir fjárfesti ekki í siðlausum fyrirtækjum

- „fyrirtæki umbuna stjórnendum með kjörum sem ofbjóða launafólki.“

Formannaráð BSRB fordæmir harðlega bónusgreiðslur til stjórnenda fyrirtækja og launakjör þeirra sem eru í engu samræmi við raunveruleika íslensk launafólks. Þetta kemur fram í ályktun ráðsins sem samþykkt var á fundi þess.

„Ráðið skorar á bæði fulltrúa launafólks og fulltrúa atvinnurekenda í stjórnum lífeyrissjóða að beita sér af fullum þunga gegn þessari óheillaþróun. Ráðið telur það ekki hlutverk lífeyrissjóða landsmanna að fjárfesta í fyrirtækjum sem sýna af sér algert siðleysi með því að greiða stjórnendum ofurlaun eða bónusa sem ekki eru boðnir almennum starfsmönnum fyrirtækjanna,“ segir einnig á vefsíðu BSRB.

Ályktun formannaráðs BSRB í heild sinni er hér að neðan

Formannaráð BSRB fordæmir bónusgreiðslur til stjórnenda fyrirtækja og launakjör sem eru í engu samræmi við raunveruleika íslensks launafólks. Eftir að tekið var á bónusgreiðslum og ofurlaunum í kjölfar bankahrunsins haustið 2008 virðist nú allt vera að færast í sama farið þar sem fyrirtæki umbuna stjórnendum með kjörum sem ofbjóða launafólki.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Formannaráðið skorar á fulltrúa samtaka launafólks og samtaka atvinnurekenda í stjórnum lífeyrissjóða að beita sér af fullum þunga gegn þessari þróun. Lífeyrissjóðir landsmanna eiga ekki að fjárfesta í fyrirtækjum sem sýna af sér algert siðleysi með því að greiða stjórnendum sínum ofurlaun eða bónusgreiðslur sem almennir starfsmenn sömu fyrirtækja njóta ekki.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: