- Advertisement -

Magga Stína kosin formaður leigjenda

Magga Stína kosin formaður leigjenda

Gunnar Smári skrifar: Á aðalfundi Samtaka leigjenda í dag var kjörin ný stjórn samtakanna. Margrét Kristín Blöndal tónlistarkona var kosin formaður. Auk hennar sitja í framkvæmdastjórn Rósa Jóhannsdóttir varaformaður, Bragi Páll Sigurðarson ritari, Pálína Sjöfn Þórarinsdóttir gjaldkeri og Haraldur Ingi Haraldsson, Kolbrún Jónsdóttir og Þórólfur Júlían Dagsson meðstjórnendur.

„Ég er nú bæði upp með mér og þakklát því trausti sem mér er sýnt,“ segir Magga Stína. „Það kom auðvitað vel fram á fundinum hvað leigjendur búa við mikið óréttlæti og óvissu. Það er hreint út sagt óhugnanlegt að heyra af aðbúnaði innflytjenda í láglaunastörfum sem greiða starfsmannaleigum stórar fjárhæðir fyrir rúmstæði, að hlusta á foreldra sem hafa þurft að flytja með börnin sín á milli skólahverfa og það er að lokum bara óþolandi að heyra af því gegndarlausa okri sem leigjendur búa við, algjörlega óvarðir af stjórnvöldum. Það er ekki hægt að láta það viðgangast og sitja áfram hljóður hjá. Hvergi í okkar heimshluta er það látið viðgangast að stór leigufélög geti gert út á húsnæðisvanda almennings eins og hér er látið óáreitt. Það var algerlega auðheyrt á fundinum áðan að leigjendur ætla sér ekki að sitja undir þessu lengur. Við erum risin upp og ætlum að berjast fyrir réttindum okkar og hagsmunum. Leigjendur þurfa í raun að berjast í bökkum fyrir lífi sínu. Þannig er staðan. Þegar fólk borgar orðið 2/3 af launum sínum í húsaleigu er það að berjast fyrir lífi sínu og barnanna sinna.“

Þær breytingar voru gerðar á lögum samtakanna á fundinum að nú var kosið í 34 manna stjórn þar sem sitja leigjendur af landinu öllu, fólk í ólíkri stöðu og sem leigir hjá mismunandi leigufélögum. Markmiðið er að stofna félög innan Samtaka leigjenda sem sinna munu hagsmunagæslu ólíkra hópa. Á föstudaginn næsta verður stofnfundur Félags leigjenda hjá Félagsbústöðum og stofnun Félags leigjenda á Norðurlandi er í undirbúningi.

„Hagsmunir leigjenda geta verið mjög ólíkir,“ segir Magga Stína. „Innan þessara félaga getur fólk barist með fólki sem er í líkri stöðu og nágrönnum sínum. Markmiðið er síðan að Samtök leigjenda haldi utan um sameiginleg hagsmunamál allra leigjenda.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Á fundinum kom fram að nýkjörin stjórn Samtaka leigjenda mun leita til verkalýðshreyfingarinnar um stuðning og samstarf. Húsnæðismál eru þegar allt kemur til alls mikilvægasta kjaramál almennings og hagsmunabarátta leigjenda er samofin baráttu láglaunafólks, öryrkja, eftirlaunafólks, námsfólk og innflytjenda. „Við teljum fullvíst að verkalýðshreyfingin mun fagna eflingu Samtaka leigjenda og að hún muni styðja samtökin til öflugrar hagsmunagæslu,“ segir Magga Stína.

Eftirtaldir sitja í 34 manna stjórn Samtaka Leigjenda: Aminata Diouf, Anika Noack, Ásdís Helga Jóhannesdóttir, Ásta Gréta Hafberg , Bragi Páll Sigurðarson, Díana María Líndal Stefánsdóttir, Guðmundur H. Helgason, Guðrún Þórsdóttir, Gunnar Ingi Gunnarsson, Gústaf Grönvold, Haraldur Ingi Haraldsson, Helga Snædal, Hildur Oddsdóttir, Hólmsteinn A. Brekkan, Jóhann Már Sigurbjörnsson, Jón Rúnar Sveinsson, Kolbrún Jónsdóttir, Kristján E. Karlsson, Laufey Ólafsdóttir, Magdalena Kristinsdóttir, Magdalena Kwiatkowska, Margrét Kristín Blöndal, Maria Ylfa Lebedeva, Oddur Sigmundsson Báruson, Pálína Sjöfn Þórarinsdóttir, Rán Reynisdóttir, Rósa Jóhannsdóttir, Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir, Sara Björg Kristjánsdóttir, Sólveig Edda Vilhjálmsdóttir, Steingrímur Dúi Másson, Yngvi Ómar Sighvatsson, Þórdís Guðjónsdóttir og Þórólfur Júlían Dagsson.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: