- Advertisement -

Meðvirkni með milliverðlagningu

Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifar:

Þetta er mál af þeirri stærðargráðu að forsætisráðherra ætti sjá til þess að það verði til lykta leitt með gagnsæjum hætti og með hraði.

Helgi Seljan á þakkir skyldar fyrir að fjalla um undirverðlagningu á loðnu á RÚV í dag.

Það er búið að liggja fyrir í opinberri umræðu í á annað ár, að makríll sem veiddur er úr sömu torfunni er seldur á margfalt hærra verði í vinnslur í Færeyjum en það verð sem fæst fyrir fiskinn hér heima.

EKKERT HEFUR BREYST
Nú eru veiðar hafnar á ný á makríl og sama staða er uppi nú og í fyrra – Gríðarlegur verðmunur á verðinu í Færeyjum og Íslandi. Það að ekki sé brugðist við með beinskeyttum hætti vekur eðlilega upp spurningar m.a. hjá mér um hvað þurfi eiginlega til en aðgerðaleysið rýrir trúverðugleika stjórnvalda.

Eydís Ásbjörnsdóttir og Dagur B. Eggertsson.
Sigurjón: Enda er engin vestræn þjóð sem sættir sig við milliverðlagninug hvað þá á helstu útflutningsafurð sinni. Það er gott að fólk viti það að enginn liðsauki hefur borist frá neinum þingmanni í stjórnarandstöðunni vegna málsins.

Ég og fleiri þingmenn stjórnarliðsins m.a. Eydís Ásbjörnsdóttir og Dagur B. Eggertsson höfum lagt áherslu á gagnsæi hvað varðar verðlagningu á afurðum sem unnar eru úr sameiginlegri auðlind þjóðarinnar. Enda er engin vestræn þjóð sem sættir sig við milliverðlagninug hvað þá á helstu útflutningsafurð sinni. Það er gott að fólk viti það að enginn liðsauki hefur borist frá neinum þingmanni í stjórnarandstöðunni vegna málsins.

Á vordögum óskaði ég eftir að fá upplýsingar um útflutningsverð á frystum loðnuafurðum síðustu vertíðar og tók það drjúgan tíma að koma fyrirspurninni áfram. Þegar svarið loksins barst þá hafði orðið einhver misritun þannig að upplýsingar fengust um afurðaverðið á árinu 2025.

Fjárlaganefnd þingsins óskaði eftir minnisblaði hvernig eftirlit með milliverðlagningu færi fram einmitt í tengslum við þann gríðarlega mun sem greitt er fyrir loðnu í Færeyjum og á Íslandi. Svarið fylgir hér að neðan og er kostuglegt en nefndin fékk örstutta umfjöllun um lagaumgjörð, eyðublöð sem unnið er með og jú að 242 félög hefðu skilað því inn og í lokin segir: „Mismunandi verð á
fiskmarkaði á Íslandi og Færeyjum hefur ekki komið til sérstakrar skoðunar.“

Hér er um stórt mál að ræða og gríðarlega hagsmuni líklegast einhverja tugi milljarða króna á hverju ári – það er snúið að átta sig á því hvers vegna ekki er brugðist við en mögulega er það eitthvert sambland af átakafælni og meðvirkni.

Þetta er mál af þeirri stærðargráðu að forsætisráðherra ætti sjá til þess að það verði til lykta leitt með gagnsæjum hætti og með hraði.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: