- Advertisement -

Meira en milljarði stolið – engin viðurlög

Stundum vildi ég óska þess að ég gæti, líkt og Kristján Loftsson, sent ráðherrum þessa lands tölvupóst og það myndi duga til þess að þessu yrði kippt í lag.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, skrifar:

Vissuð þið að á árunum 2015 – 2019 sendi Efling frá sér kröfur vegna stolinna launa fyrir meira en milljarð króna? Vissuði að í lögum þessa lands eru engar heimildir fyrir sektum eða viðurlögum vegna þessa þjófnaðar?

Stundum vildi ég óska þess að ég gæti, líkt og Kristján Loftsson, sent ráðherrum þessa lands tölvupóst og það myndi duga til þess að þessu yrði kippt í lag, að til yrði „pólitískur vilji“ og gengið yrði í að uppræta þetta ömurlega ástand. Að ég gæti sent tölvupóst og í honum væri skjal viðhengt þar sem ég „hef sett inn breytingar þær, sem ég fer fram á að verði gerðar með rauðu“ líkt og forstjóri Hvals gerði þegar hann upplýsti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um nákvæmlega hverju ætti að breyta í reglugerð sem hentaði ekki.

„Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt.“

En fyrst og fremst vildi ég óska þess að eitthvað mark væri takandi á loforðum sem verka og láglaunafólki eru gefin af stjórnvöldum. Við undirritun Lífskjarasamningsins var Eflingu lofað af stjórnvöldum að fundin yrði lausn á málinu. Og Ásmundur Einar hefur sjálfur lofað formönnum stærstu aðildarfélaga og landssambanda innan ASÍ, á fundi sem hann kom sem gestur á, að loforðið um sektarheimildir vegna launaþjófnaðar yrði efnt. Ég var á fundinum og heyrði hann gera það.

Ég er að spá í að athuga hvort trixið hans Kristjáns Loftssonar virki fyrir mig. Að senda bara skjal með útfærslunni nákvæmlega eins og ég vil sjá hana, á ráðherra ríkisstjórnarinnar. Kannski hugsa þau með sér að vegna þess að það er bókstaflega ókeypis fyrir þau að uppfylla loforðið sé leiðinlegt að gera það ekki. Kannski hugsa þau að það sé augljóslega arðbært fyrir ríkissjóð að launaþjófnaður verði upprættur vegna þess að þá komi jú skattar og gjöld til greiðslu af laununum og þessvegna skuli efna gefið loforð.

Kannski. En kannski er þeim bókstaflega skítsama. Og ekkert virkar. Ekki barátta, ekki trix. Það er hvort sem er fyrst og fremst aðflutt fólk sem verður fyrir þessu. Aðflutt verka og láglaunafólk. Ekki einu sinni með kosningarétt. Ekki fólk eins og Kristján Loftsson, ekki fólk sem tilheyrir eigna og valdastétt þessa lands. Bara vinnuaflið sem hefur það hlutverk að búa til gróða fyrir eigendur atvinnutækjanna og halda kjafti á meðan. Fólkið sem á að þola hvað sem er, líka það að laununum þeirra sé bókstaflega stolið. 

„Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: