Umræðan/Facebook: Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður og fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokks, skrifaði:
Þótt þessi ríkisstjórn hafi aðeins starfað í eitt ár hafa menntamálaráðherrarnir í þessari sömu stjórn verið þrír. Hvorki meira né minna. Allir frá Flokki fólksins.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir reið á vaðið. Allir muna hvernig sú ráðherratíð fór. Guðmundur Ingi Kristinsson tók við. Hann hefur nú sagt af sér vegna heilsubrests. Þótt allir óski Guðmundi Inga góðs bata var ljóst frá fyrsta degi að hann réð ekki við verkefnið. Og nú hefur Inga Sæland tekið við keflinu.
Ég var formaður menntamálanefndar Alþingis í 4 ár. Sú reynsla kenndi mér að málaflokkur menntamála er ekki bara mjög mikilvægur. Verkefnin eru líka flókin.
Sá hringlandaháttur og óstöðugleiki við yfirstjórn menntamála sem við höfum horft upp á síðustu 12 mánuði er afar ótraustvekjandi, svo ekki sé meira sagt.
Nauðsynlegum árangri og framförum í menntamálum verður ekki náð á meðan stjórn- og forystuleysi af þessu tagi ríkir í menntamálaráðuneytinu. Það mun bitna verst á krökkunum.
Mér finnst augljóst að metnaður þeirra sem nú sitja í ríkisstjórn í menntamálum er enginn.
Ég held að ég þurfi ekki einu sinni að útskýra þá skoðun mína frekar.