- Advertisement -

Mogginn fer gegn Samkeppniseftirlitinu

Meðal þess sem fjallað er um í Reykjavíkurbréfi Moggans. Þar segir meðal annars:

„Þá verður nei vonandi svarið við því sem fram kom í vikunni hjá Samkeppniseftirlitinu, SKE, sem kynnti afrek sín í nýrri ársskýrslu þar sem einnig var kvartað undan því að allt of fáir starfsmenn væru hjá stofnuninni. Í ávarpi stjórnarformanns segir að meðal annars „vaxandi væntingar samfélagsins“ kalli á að „rekstrargrundvöllur stofnunarinnar sé í samræmi við hlutverk hennar“. Þegar lesið er lengra inn í ársskýrsluna má sjá að þar er kvartað undan því að fjárveitingar séu ónógar og að fjöldi starfsmanna þyrfti um það bil að tvöfaldast ef vel ætti að vera.

Samkeppniseftirlitið er fjarri því eina ríkisstofnunin sem telur einsýnt að þar starfi allt of fáir, þó að þær hafi að vísu ekki allar haft hugmyndaflug í að reikna út að þær skili margföldum ávinningi til samfélagsins. Slíkar óskir eða kröfur um aukin fjárframlög og fjölgun starfsfólks hjá hinu opinbera eru einmitt ágæt dæmi um það þegar ráðherrar og aðrir sem fara með fé skattgreiðenda þurfa að hafa burði til að segja nei.“

Og síðar segir:

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það að segja nei…

„Opinberar stofnanir, líkt og Samkeppniseftirlitið er gott dæmi um, verða iðulega að sjálfstæðum þrýstihópum og sérhagsmunapoturum sem geta orðið ráðherrum og þingmönnum afar erfiðir. Stjórnmálamenn standa oft frammi fyrir háværum þrýstihópi af þessu tagi sem jafnvel beitir óprúttnum aðferðum við að koma sérhagsmunum sínum á framfæri, líkt og Reykvíkingar urðu vitni að í vanhugsuðum mótmælum nokkurra borgarstarfsmanna við ráðhúsið í vikunni. Slíkar aðgerðir geta verið stjórnmálamönnum erfiðar, en þá skiptir máli að helstu embætti kjörinna fulltrúa séu skipuð fólki sem kann að segja nei.

Það að segja nei þarf að sjálfsögðu ekki að gera með hávaða eða hurðaskellum, alls ekki. Slíkt er ævinlega betra að gera af stakri kurteisi en jafnframt þannig að það verði ekki misskilið. Rétt eins og landsmenn gerðu um liðna helgi þegar þeir sögðu nei, takk, sama og þegið. Við viljum ráða okkar málum sjálfir.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: