- Advertisement -

Mogginn mærir Hildi fyrir uppsagnirnar

„Skörugleg framganga Hildar Björnsdóttur borgarstjóra við hagræðingu í borgarkerfinu hefur vakið mikla athygli. Og vonir um að hún muni standa við metnaðarfulla 100 daga verkefnaáætlun sína.

Í viðtali við Morgunblaðið í gær sagði Hildur að hún vildi ekki aðeins fækka í ráðhúsinu, heldur líka taka upp viðveruskyldu og að menn þyrftu að leita heimildar til þess að ferðast til útlanda á vegum borgarinnar.

Sennilega kemur það fleirum en nýjum borgarstjóra á óvart að bæði stafrænir og hliðrænir leiðtogar borgarinnar hafi mætt eftir hentugleikum í vinnuna og líti á ráðhúsið sem ferðaskrifstofu og dagpeningaprentvél. Oddvita Samfylkingarinnar, Pétri Marteinssyni, blöskraði þetta. Ekki þetta með mætinguna og ferðalögin, heldur uppsagnir 18 manns. „Mér finnst þessar breytingar hafa gerst dálítið hratt og aggressívt. Á tímum þar sem mannréttindi og jöfnuður eiga undir högg að sækja víðast hvar í heiminum, þá eru þetta einhver skilaboð sem mér líkar ekki.“

Þegar horft er á starfsmannatölur borgarinnar kemur í ljós að á valdatíma Samfylkingar 2010-2026 fjölgaði starfsmönnum um ríflega tvö þúsund, eða 33%. Finnst einhverjum að þjónusta borgarinnar hafi batnað um þriðjung? Blöskrar Pétri það ekki?“

Pétur er frekar að vitna til þess að Hildur ákvað að leggja niður mannréttindaskrifstofuna og mannréttindaráðið. Útúrsnúnignur Moggans.

(Rétt er að taka fram að dóttir þess sem þetta skrifar er í hópi þess fólks sem hefur verið sagt upp störfum hjá borginni.)


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: