- Advertisement -

Nú á að frysta allt hjá launafólkinu

Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins og fyrsti varaforseti ASÍ, skrifar:

Vangaveltur um stöðu mála. Framkoma ýmissa aðila sem eru fulltrúar atvinnurekenda og stjórnvalda er með ólíkindum þegar kemur að því að það sem framundan er. Nú á að frysta allt hjá launafólkinu en á sama tíma á að dæla fjármunum, nánast óheft, út í fyrirtækin. Það sé betra að halda fólki við sultarmörk heldur en að reyna að létta undir með því að auka ráðstöfunartekjur heimilanna og ýta undir að hjól samfélagsins gangi sem smurðust áfram.

Auknar ráð­stöfunar­tekjur heimila snúa hjólum sam­fé­lagsins

Nú er efsta lag samfélagsins farið að kalla eftir því að almennt launafólk “axli ábyrgð” á stöðunni. Efsta lag samfélagsins vill að almennt launafólk gefi eftir og eða fresti launahækkunum sem framundan eru (haldi samningar gildi sínu). Þarna tala einstaklingar sem telja sig hafa sannleikann í höndum sér. Samtök atvinnulífsins hafa tekið þá stefnu að hámarka neikvætt tal og reyna þannig að magna upp enn verra ástand en það raunverulega er.

Það er nefnilega þannig að þrátt fyrir erfiðleika og þrengingar þá eru aðstæður misjafnar í samfélaginu, misjafnar eftir atvinnugreinum. Ferðaþjónustan er líklega í verstu stöðunni þar sem nánast öll lönd í kringum okkur hafa lokað landamærum sínum eða krefjast þess að ferðamenn fari í sóttkví við komu til landanna (svipað og hér á landi). Það hefur í raun stöðvað straum ferðamanna á milli landa. Sviðslistagreinar berjast einnig en vonandi horfir til betri vegar þar í haust.

En hvað er mikilvægast þegar við förum inn á erfið samdráttarskeið? Jú það er einmitt að hjól samfélagsins gangi sem best. Það eru ekki bara hjól atvinnulífsins heldur þurfa hjól samfélagsins að snúast. Við erum í einstaklega góðri stöðu að halda þeim gangandi meðal annars með einkaneyslu fólksins. Verslun getur gengið vel ef fólk heldur áfram að kaupa vöru. Framleiðsla getur gengið vel ef neytendur kaupa vörurnar o.s.frv. Við sjáum að innlend verslun hefur gengið vonum framar að undanförnu.

En nú er reynt að leggja ofuráherslu á að styðja þurfi við fyrirtæki landsins. Samtök atvinnulífsins hafa lagst af fullum þunga gegn hækkun á atvinnuleysisbótum en fagna öllu óheftu fjárstreymi til fyrirtækjanna sem ekki er augljóst hverju skili síðan áfram til almennings. Það sýnir hversu ósvífin þessi samtök eru með þessari framkomu að leggjast gegn fólkinu.

Við sjáum nú þegar að vöruverð og gjaldskrár hafa verið að hækka að undanförnu. Sem betur fer er það ekki algilt en sífellt fleiri tilfelli sjást þar sem vöruverð hefur hækkað.

En á sama tíma og fyrirtækin hækka vöruverð þá virðist sem svo að þau ætli sér að leggjast gegn hækkun launa. Þegar þetta tvennt leggst saman þá mun það gera það að verkum að einkaneysla mun dragast verulega saman, fólk hefur ekki efni á því að kaupa vörur og hjól samfélagsins hægja verulega á sér. Já þá er búið að búa til heimatilbúna dýpri kreppu.

Mikilvægi þess að tryggja heimilunum nægar ráðstöfunartekjur þrátt fyrir samdrátt hefur sjaldan ef nokkurn tímann verið jafn mikilvægt.

Hækkun atvinnuleysisbóta mun því skila sér í færri gjaldþrotum heimila. Hækkun atvinnuleysisbóta mun skila sér í bættri stöðu fyrirtækja þar sem fólk getur, þrátt fyrir atvinnumissi, haldið áfram að kaupa nauðsynjavörur og staðið við sínar skuldbindingar.

Hækkun launa og hækkun atvinnuleysisbóta mun jafnframt skila sér í auknum skatttekjum ríkisins. Aukið fjármagn sem fer til óskilgreindra óljósra ráðstafana inn í fyrirtækin skilar ekki meiri skattgreiðslum frá fyrirtækjunum, þau greiða einfaldlega tiltölulega litla skatta til samfélagsins, það er launafólk sem greiðir mestu skattana. Það er í formi tekjuskatts og skatta sem lagðir eru á vörur og þjónustu.

Förum að hugsa út frá hagsmunum heimilanna, út frá hagsmunum launafólks. Almannahagsmunir umfram sérhagsmuni!


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: