- Advertisement -

„Nú heldur Ólafur sömu ræðurnar“

Úlfar Hauksson skrifaði:

„Ólafur Ragnar segist „bera ábyrgð á kynslóðunum“ hvorki meira né minna. Ólafur var á móti aðild Íslands að EFTA og líka EES. Hvorutveggja færði kynslóðum Íslendinga stórkostlegar framfarir, frelsi og réttarbætur og gerbreytti íslensku samfélagi til hins betra.

Nú heldur Ólafur sömu ræðurnar og hann hélt gegn EFTA og EES… allt fer til fjandans ef Íslendingar segja já við aðildarviðræðum við ESB 29. ágúst n.k! Nú hópast þeir saman sem héldu dramatískar heimsendaræður á móti EES og segja núna að EES sé frábær kostur fyrir Ísland! Þetta er ekki skáldskapur kæru lesendur. Já og Ólafur var líka á móti NATO! Reynslan segir okkur að kjósa já 29. ágúst…. fyrir kynslóðirnar. Áfram Ísland…“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: