- Advertisement -

Okkur má ekki vera sama um varnarlaus börn

Halldóra Mogensen skrifar:

Halldóra Mogensen og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.

Börnin eru búin að vera hér í meira en tvö ár. Þau eru búin að eignast vini, læra tungumálið, festa rætur. Að senda þau út úr landi í algjöra óvissu er áfall sem mun hafa óafturkræfar afleiðingar fyrir þroska þeirra og heilsu. Við vitum þetta. Að skýla sér bakvið skriffinnsku og „hentuga“ túlkun á lögum og reglum til að réttlæta þessa ákvörðun sýnir varhugaverðan skort á samkennd og tengingu við það sem raunverulega skiptir máli í lífinu. Okkur má ekki vera sama um varnarlaus börn sem eru biðja okkur um að bjarga lífi sínu. Hvert erum við þá komin og hvar endum við?


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: