- Advertisement -

Orkupakkaræfillinn eignast stuðningsmann


Hann stóð uppi í hárinu gegn ritstjóra Morgunblaðsins og það þora ekki margir íhaldsmenn.

Össur Skarphéðinsson skrifar:

Páll Magnússon er af rokksólid eðalkrötum kominn – en villtist á aðra jötu. Þann dreng má lengi gráta. Hann er kjarkmaður. Tók þátt í uppreisninni gegn Elliða í Vestmannaeyjum sem fleytti Írisi Róbertsdóttur í hásæti Eyjamanna. Hann stóð uppi í hárinu gegn ritstjóra Morgunblaðsins og það þora ekki margir íhaldsmenn.

Það þarf líka kjark til að skipta um skoðun í stórum málum. Það hefur komið fyrir mig – en því miður ekki oft. Páll er einn af fáum upphaflegu andstæðingum orkupakkaræfilsins sem hefur haft kjark, og vitsmuni, til að skoða rökin með og á móti. Flestir lepja bara upp meltuna hráa úr Guðna Ágústssyni og Styrmi Gunnarssyni.

Páli Magnússyni fórst hins vegar einsog nafna hans Páli postula á leiðinni til Damaskus. Hann sá villu síns vegar og skipti um skoðun. Hvort hann fær „eilíft hús á himnum“ einsog nafni hans postulinn lofaði sanntrúuðum í síðara bréfi sínu til Kórintumanna er óvíst. Alla vega á þó þingmaðurinn virðingu skilda fyrir að hafa skipt um skoðun. Það er ekki auðvelt í því úlfagreni sem eru hans „jarðnesku tjaldbúðir“ einsog postulinn orðaði það löngu fyrir daga Sjálfstæðisflokksins.

Fengið af Facebooksíðu Össurar.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: