- Advertisement -

Páll segir ekki hægt að fæðast í röngum líkama: „Guð gerir ekki mistök“

Hinn umdeildi kennari, Páll Vilhjálmsson, fullyrðir á bloggsíðu sinni að ekki hægt sé hægt fæðast í röngum líkama:

„Staðhæft er að sumir fæðist í röngum líkama. Að ,,kona“ fæðist í líkama karls og öfugt; ,,karl“ í kvenlíkama.

En það er ekki hægt.

Ástæðan er eftirfarandi.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Við barnsfæðingu verður til einstaklingur heill og óskiptur. Meðvitundin og líkaminn eru eitt. Hvernig einstaklingurinn vex og dafnar er háð erfðum annars vegar og hins vegar atlæti. Aðeins andvana fæddir eru án meðvitundar,“ segir Páll og heldur ótrauður áfram á sinni vegferð:

„Lifandi fædd börn eru ein óskiptanleg heild, líkami og meðvitund. Hvorugt getur án hins verið. Einstaklingurinn er annað tveggja karlkyns eða kvenkyns. Í örfáum tilvikum, vel innan við 1% lifandi fæddra, eru kyneinkenni óræð. Þau tilvik eru læknisfræðilegt úrlausnarefni.“

Bætir við:

„Til að einstaklingur fæðist í röngum líkama þarf meðvitundin að verða óháð líkamanum. En meðvitund utan líkama er ekki til. Meðvitundin gerir fólk lifandi. Án meðvitundar er maðurinn sofandi/meðvitundarlaus eða hreinlega dauður. Meðvitundin skapar upplifun.

Einhver getur verið tík án þess að vera geltandi; annar ljónstyggur en samt ekki ferfætlingur. Maður getur verið lúsiðinn en ekki skordýr. Mörgum finnst líkami sinn ekki nógu stæltur eða grannur; brjóstin of lítil eða manndómurinn væskilslegur.“

Páll vill meina að „óánægja með líkamann og líkamsparta er viðtekinn þáttur í menningunni og snar þáttur í efnahagskerfinu. Margvísleg fegrun, húðflúr, líkamsrækt, megrun og lýtalækningar velta milljörðum. Fullorðið fólk má gera hvað það lystir við líkama sinn, tortíma honum ef því er að skipta.

En það er ábyrgðarhluti af fólki, sem á að heita fullorðið, að telja ungmennum trú um að hægt sé að fæðast í röngum líkama.“

Segir einnig að „löngun til að vera annað kyn en manni var úthlutað við fæðingu er allt annað. Drengur getur hagað sér eins og stúlka og stúlka eins og drengur. Hlutverkaleikur er barnagaman sem sumir vaxa ekki upp úr.

Það hafa alltaf verið til kvenlegir karlar og karlmannlegar konur.

En hugmyndafræðin, blekkingin, um að fæðast í röngum líkama fær sumt ungt fólk til að gangast undir óafturkræfar aðgerðir og lyfjameðferð.“

Að lokum nefnir Páll að „löngun er ein í dag en önnur á morgun. Ekki síst hjá ungu fólki. Óafturkræf inngrip í líkamann vara fyrir lífstíð. Þeir sem telja sjálfum sér trú um að vera í röngum líkama eru í reynd að segja meðvitundina og líkamann sitthvað. Ef meðvitundin er ekki líkamleg og náttúruleg hlýtur hún að vera yfirnáttúrleg, guðleg. En þá færi meðvitund aldrei í rangan líkama. Guð, samkvæmt skilgreiningu, gerir ekki mistök.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: