- Advertisement -

Pawel segir stöðu Viðreisnar sterka

Umræðan/Facebook: Pawel Bartoszek skrifaði:

„Ári eftir kosningar mældist stuðningur við ríkisstjórn 58,9%. Engin ríkisstjórn hefur haldið velli jafnvel á fyrsta ári í mælingum Gallup seinustu 18 ár.

Sá flokkur sem nýtur þess mest er flokkur forsætisráðherra, sem hefur aukið fylgið sitt um 10%. (Fylgisauking Samfylkingarinnar er mun meiri en fylgisauking Miðflokksins frá kosningum.)

Varðandi fylgi Viðreisnar þá hef ég þann samanburð að hafa verið í ríkisstjórninni sem sat 2017. Á ársafmæli þeirrar ríkisstjórnar var hún farin í tætlur, Viðreisn rétt lafandi á þingi og ég sjálfur kominn á skrá hjá Vinnumálastofnum.

Samstarfið við Samfylkinguna og Flokk fólksins er farsælt og staða Viðreisnar innan þess er sterk. Ég hlakka til að eiga áframhaldandi samtöl við kjósendur í kjördæminu mínu á næsta ári. Nú í haust „heimsóttu“ þingmenn kjördæmisins Miðbæinn og Laugardalinn.

Á næsta ári langar mig að halda áfram að skipuleggja heimsóknir í kjördæmið. Hlakka til að fara á Kjalarnesið, Grafarvog og Gamla Vesturbæinn, heimsækja fyrirtæki í Gömlu höfninni og Ártúnshöfða. Get ekki beðið!“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: