- Advertisement -

Samfylkingin hefur færst til hægri

Það er ekki víst að kjósendur almennt sætti sig til lengdar við þessa hægrisveiflu og kjósi næst til vinstri.

Hrafn Magnússon.

Hrafn Magnússon skrifar:

Halldór Laxnes orðaði þetta þannig í Heimsljósi, að ekki komast allir á kirkjugarðsballið í haust sem hlökkuðu til þess í vor. Þau orð eru ágætis leiðsögn fyrir þá sem taka of mikið mark á skoðunarkönnunum um þessar mundir.

Stjórnmál:

Samkvæmt skoðunarkönnunum er Samfylkingin í mikilli sókn. Fylgið reynist um 30% í nýjustu könnum Maskínu. Þó dyggir stuðningsmenn Samfylkingarinnar geti nú um stundir kæst verðskuldað yfir þessari fylgisaukningu er þó ekki síður sérstök ástæða fyrir flokkinn og forystuna að líta um öxl til ársins 2016, en þá um haustið var efnt til Alþingiskosninga. Í þeim kosningum beið Samfylkingin afhroð og fékk einungis 5,7% fylgi og aðeins þrjá menn kjörna á þing. Það er ekki liðinn áratugur frá þessum kosningum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þó nú um stundir blási hlýir vindar um Samfylkinguna er fullreynt að fylgi stjórnmálaflokka getur verið hverfult sem sannast best þegar talið er upp úr kjörkössunum. Þjóðfélagið og þar með ráðandi stjórnmálaflokkar hafa líkt og í Evrópu og Bandaríkjunum færst til hægri, ef svo má að orði komast, þ.á.m. ótvírætt Samfylkingin. Það er ekki víst að kjósendur almennt sætti sig til lengdar við þessa hægrisveiflu og kjósi næst til vinstri.

Halldór Laxnes orðaði þetta þannig í Heimsljósi, að ekki komast allir á kirkjugarðsballið í haust sem hlökkuðu til þess í vor. Þau orð eru ágætis leiðsögn fyrir þá sem taka of mikið mark á skoðunarkönnunum um þessar mundir.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: