- Advertisement -

Samningsmarkmið ÍSLANDS við ESB opinberuð

Birgir Dýrfjörð skrifaði:

miðjan.is birtir niðurlag á viðtali í Vísir.is við Þorgerði Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. 

Lok viðtalsins er svona:

„Að sögn utanríkisráðherra liggi samningsmarkmiðin fyrir, svart á hvítu, í áliti meirihluta utanríkismálanefndar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Í sjávarútvegsmálum er markmiðið skýrt og engum vafa undirorpið:

Ísland haldi FULLU forræði yfir sjávarauðlindinni og rétti okkar til að stýra veiðum á grundvelli sjálfbærni, ráðgjafar sérfræðinga og veiðireynslu, og að afrakstur auðlindarinnar haldist hér áfram.

Í landbúnaði er lögð áhersla á að hér verði áfram hægt að stunda öflugan landbúnað í þágu fæðuöryggis og byggða, og að banni við innflutningi lifandi dýra verði viðhaldið til að verja sérstöðu okkar sem eyju langt út í hafi.

Í orkumálum er markmiðið að FORRÆÐI þjóðarinnar yfir vatns og orkuauðlindum haldist óskorað, og að ákvörðun um sæstreng verði áfram íslensk ákvörðun eins og lög kveða á um í dag,“ segir ráðherra.

Þetta eru ótvírætt gleðileg tíðindi fyrir þau sem óttast að við munum semja frá okkur yfirráð okkar yfir þeim auðlindum sem upp eru taldar hér að ofan.

Formaður Sjálfstæðisflokksins getur nú aftur farið að skrifa greinar um ábata Íslendinga af nánari tengingu við grannþjóðir okkar í Evrópusambandinu.

Það á svo eftir að koma í ljós hvort eigendur Morgunblaðsins og ráðendur Sjálfstæðisflokksins muni LEYFA HENNI ÞAÐ.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: