- Advertisement -

Samsærið gegn Eflingu

Aðsend grein:

Vilhjálmur Birgisson, formaður starfsgreinasambandsins SGS, fór mikinn í fjölmiðlum þegar hann lýsti samningum sínum við samtök atvinnulífsins. Hann sagði þá vera svo fádæma árangursríka, að annað eins hefði ekki sést. Flestir glöddust yfir þessum einstaka árangri hans.

Það brá þó skugga á gleðina þegar formaður VR sagðist hafa samþykkt samskonar samning með óbragð í munninum. Hann rauk svo út, og neitaði að gleðjast í sultu og rjóma og ilmandi vöfflum.

Þegar Efling lýsti svo frati á samninginn, og benti á að hann skilaði aðeins um 7% launahækkunum í 10% verðbólgu, og ört hækkandi verðlagi og rýrnandi kaupmætti. Á sama tíma, og óhófleg aukning hafi verið á hagnaði fyrirtækja í landinu.

Það er ekkert grín að láta „Galna stelpu“ afhjúpa mann…

Með þessu frat-svari Eflingar hvarf glæsileikinn, sem Vilhjálmur hafði lýst.

Mont-ræðurnar hans urðu að örgustu öfugmælum. Barnalegt sjálfshólið át sig sjálft.

Keisarinn nakinn

Skiljanlega brástVilhjálmur illa við höfnun Eflingar. Það er ekkert grín að láta „Galna stelpu“ afhjúpa mann eins og keisarann í ævintýrinu, sem klókir menn höfðu platað til að trúa því, að hann væri klár og mikilsverður maður, en ekki bara hlægilegur nakinn spjátrungur.

Upp komast svik um síðir

Vilhjálmur svaraði svo Eflingu. Í þeim svörum lýsti hann því ítrekað yfir, í viðtölum og greinaskrifum, að hann myndi aldrei blanda sér í samningaferli Eflingar við samtök vinnuveitenda.

Sjálfsagt hefur hann trúað að hann þyrfti þess ekki. Að hann gæti treyst orðum framkvæmdastjóra SA. sem hafði ítrekað lýsti því yfir, að SA myndi aldrei bregðast trúnaði við SGS, með því. að gera öðruvísi kjarasamning við Eflingu en SGS.

Hvað þýðir þetta orðalag, að SA ætli ekki að bregðast trúnaði við SGS?

Hvaða orð tungunnar ná að lýsa svona innræti forustufólks Starfsgreinasambandsins?

Það þýðir einfaldlega, að SA og SGS hafi gert trúnaðarsamning um það, að Efling muni ekki fá skárri samning en SGS.

Það þýðir, að forusta SGS og SA gerðu samsæri gegn launalægstu stéttinni í landinu.

Samsæri gegn því að verkafólk, sem oft á tíðum á ekki krónur fyrir mat sínum, geti nýtt sér samningsrétt sinn. Þannig ætla þau að stela lambi fátæka mannsins.

Hvaða orð tungunnar ná að lýsa svona innræti forustufólks Starfsgreinasambandsins?

Til fróðleiks

Samkvæmt upplýsingum frá Forsætisráðuneytinu, þá er meðal húsaleiga á landsbyggðinni 152 þúsund krónur á mán. Meðal húsaleiga á Höfuðborgarsvæðinu er 220 þús. kr. á mán.

Mism. 68 þús.kr. á mán. (Heimild Stefán Ólafss. Miðjan 11.01. ´23)

Birgir Dýrfjörð, rafvirki.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: