- Advertisement -

Segir framtíðina vera í höndum íslenskra kjósenda

„Það vill svo til að ég hef hitt tvo fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar: Göran Persson sem er sósíaldemókrati og Carl Bildt sem er hægri maður. En þótt þeir hafi verið á öndverðum meiði í stjórnmálum voru þeir að minnsta kosti sammála um eitt: Full aðild Svíþjóðar að Evrópusambandinu var gæfuspor.,“ skrifar Benedikt Jóhannesson, stofandi Viðreisnar, í færslu á Facebook.

„Mér er sérstaklega minnisstætt þegar Persson sagði frá því hve aðildin hefði einfaldað samskiptin milli þjóðarleiðtoga.

Hann sagði: „Ef forsætisráðherra Svíþjóðar vildi hitta forsætisráðherra Frakklands var það meiriháttar mál áður en við gengum í Evrópusambandið. Fundinn þurfti að ákveða með þriggja ára fyrirvara og mörgum mánuðum áður en hann fór fram þurfti að leggja fram lista um þau mál sem yrðu á dagskrá. Þegar á fundinn kom voru málin kannski orðin úrelt og önnur sem við hefðum miklu frekar þurft að ræða.

Núna hittast forsætisráðherrar Evrópusambandins allir mánaðarlega og ef eitthvað þarf að ræða hnippir maður bara í þann leiðtogann sem maður á erindi við og við afgreiðum málið á tíu mínútum.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Carl Bildt er mikill Evrópusinni, eins og nær allir hófsamir hægrimenn. Hann skrifaði í Tomorrw’s Affairs um stöðu Íslands:

Hann telur að breytt staða í öryggis- og efnahagsmálum gefi Íslendingum ríka ástæðu til að skoða aftur aðild að Evrópusambandinu.

  • Ísland nýtur góðs af innri markaði ESB í gegnum EES, en sveiflukennd króna og háir vextir eru áfram veikleikar.
  • Bildt telur að óvissa í öryggismálum og minni fyrirsjáanleiki í stefnu Bandaríkjanna geri stöðu Íslands utan ESB viðkvæmari.
  • Að hans mati myndi full aðild auka áhrif Íslands, þar sem landið innleiðir nú þegar margar reglur ESB án þess að taka fullan þátt í ákvörðunum.
  • Sjávarútvegur yrði erfiðasta samningsmálið, en Bildt telur að hægt væri að finna sérlausnir. Hann telur einnig að aðild að tollabandalagi ESB myndi styrkja stöðu Íslands í viðskiptadeilum.
  • Verði viðræður teknar upp að nýju munu viðræður ganga vel því innan sambandsins á Ísland marga bandamenn.

Niðurstaða: Bildt telur að ESB-aðild sé nú í auknum mæli spurning um öryggi, áhrif og efnahagslegan styrk Íslands. En framtíðin sé í höndum íslenskra kjósenda.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: