RVK: Svandís Svavarsdóttir, fyrrum borgarfulltrúi, þingmaður og ráðherra, skrifaði:
„Vegna umræðunnar um framtíð Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar.
Mannréttindi eiga vissulega að vera leiðarljós í allri stjórnsýslu.
En reynslan kennir okkur að mannréttindi verða ekki sjálfkrafa hluti af öllum ákvörðunum. Þess vegna hafa sveitarfélög, ríki og stofnanir víða byggt upp sérþekkingu, forystu og skýra ábyrgð á þessu sviði. Það er forsenda þess að samþætting geti orðið að veruleika.
Sundlaugar og leikskólar eru ekki lögbundin verkefni sveitarfélaga frekar en mannréttindamál. Samt teljum við þau mikilvægan hluta af því samfélagi sem við viljum byggja. Sama gildir um mannréttindamál.
Ákvörðun um að leggja niður sjálfstæðan vettvang fyrir mannréttindamál er ekki hlutlaus stjórnsýslubreyting. Hún endurspeglar pólitíska forgangsröðun.
Hún kemur á tíma þegar við sjáum víða bakslag í mannréttindum, aukna skautun og harðnandi umræðu um stöðu minnihlutahópa. Á slíkum tímum skipta tákn, stofnanir og forgangsröðun máli. Ákvörðun af þessu tagi sendir þung og alvarleg pólitísk skilaboð út í samfélagið.
Þau skilaboð eigum við að ræða af fullri alvöru.“