- Advertisement -

Sigurður segir Önnu hafa hellt sér yfir sig: „Hún sakaði mig um pólitískan áróður og níða niður Samherja“

Sigurður Þórðarson, varamaður í stjórn Strandveiðifélagsins, segir framkvæmdastjóra Sjómannadags-hátíðarinnar hafa ávítt sig fyrir að hafa verið með pólitískan áróður.

Að sögn Sigurðar hellti Anna Björk Árnadóttir, eigandi viðburðafyrirtækisins Eventum, sem sá um hátíðarhöld sjómannadagsins fyrir hönd útgerðarfyrirtækisins Brim, sér í morgun yfir Sigurð Þórðarson, varamann í stjórn Strandveiðifélagsins, fyrir að hafa misnotað tjald sem félagið fékk að setja upp á Grandanum á sjómannadaginn.

Anna Björk Árnadóttir.

„Hún hringdi og sakaði mig um að hafa svikið sig, notað aðstöðuna til að vera með pólitískan áróður og níða niður Samherja.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Sigurður segir þetta alrangt.

Í tjaldinu sem Strandveiðifélagið hélt utan um ásamt mótmælahópnum Við, fólkið í landinu, var boðið upp á gul barmmerki og gular blöðrur með áletruninni „Við eigum fiskinn – ekki Samherji“ – auk þess sem gestir þáðu kakó og kleinur.

„Þetta lukkaðist einkar vel,“ segir Sigurður og bætir við:

„275 blöðrur og 250 barmmerki ruku út. Eftir örskotsstund mátti sjá blöðrurnar út um allan Grandann, þær settu sterkan svip á hátíðarhöldin. Fólk tók þessu einkar vel og hrósaði framtakinu. Ég trúi ekki að nokkur hafi þegið blöðru eða barmmerki sem var ósammála skilaboðunum. Ég hugsa að við hefðum getað gefið nokkur þúsund blöðrur, viðtökurnar voru slíkar. Kannski gerum við það næst.“

Hann segir það þó ólíklegt að af því verði ef Brim heldur áfram utan um hátíðarhöldin á sjómannadaginn í Reykjavík.

„Anna tók það skýrt fram í símtalinu að Strandveiðifélagið fengi aldrei að hafa tjald á sjómannadaginn. Það finnst mér skrítið, að það sé ekki pláss fyrir Strandveiðifélagið á sjómannadaginn né neinn sem ekki talar eins og Brim og stórútgerðin vill.“

Séra Örn Bárður Jónsson.

Við, fólkið í landinu og Strandveiðifélagið stóðu einnig fyrir viðburði við Sjávarútvegshúsið að morgni sjómannadags; þar var krans lagður á ónýta sjávarútvegsstefnu stjórnvalda og séra Örn Bárður Jónsson hélt ræðu við það tilefni.

Auk þess var Ávarpi óþekka sjómannsins dreift á samfélagsmiðlum, sem Þröstur Leó Gunnarsson, leikari og sjómaður flutti; Upptökur af hvoru tveggja hafa slegið í gegn og verið skoðaðar af tugum þúsunda manns.

„Mér sýnist á þessum viðtökum að við höfum náð að tala röddum fjöldans. Það hefur lengi verið ljóst að mikill meirihluti fólks vill ekki að stórútgerðin eigi í raun fiskimiðin. Það er því eðlilegt og nauðsynlegt að þær raddir heyrist á sjómannadaginn. Það er fáránlegt ef stórútgerðin getur komið í veg fyrir slíkt, bannað öll andmæli við sig á sjómannadaginn vegna þess að hún kostar dagskránna,“ sagði Sigurður að lokum.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: