- Advertisement -

Strákarnir sem þjarma að Svandísi

Sigurjón Magnús Egilsson:

„Með því að nota þessi lög og þessi rök til þess að slá vertíðina af, þá finnst mér verið að stappa nærri því að stöðva veiðar sem er þá mál sem ætti frek­ar að ræða á þing­inu.“

Sjálfstæðisflokkurinn er allur á röngunni. Ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur um að fresta hvalveiðum um nokkrar vikur fer illa í suma, einkum karlana í Sjálfstæðisflokknum. Og Vilhjálm Birgisson á Skaganum.

Viðbrögð strákanna eru ólík. En samt ekki. Að venju gengur Davíð lengst. Hann hótar að kippa ráðherrastólnum undan Svandísi: „Ekki má leika minnsti vafi á embætt­is­færslu ráðherr­ans. Komi skjöl­in, rétt dag­sett, ekki skjótt í leit­irn­ar, gætu Vinstri græn skjótt þurft að leita sér að nýj­um ráðherra.“

Eflaust er hótun Davíðs máttlaus. Völd hans eru engin. En áhrif hans eru í fullu gildi innan flokksins sjálfs. Þó Davíð sé ekki lengur formaður ná klær hans enn djúpt inn í flokkinn.

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Það skorti að mínu áliti til­lit til allra þeirra sem eiga hags­muni hér und­ir. Bæði sem snert­ir at­vinnu­frelsi at­vinnu­rek­and­ans en líka allra þeirra sem höfðu gert ráðstaf­an­ir til þess að veiðarn­ar gætu farið fram. Þetta skipt­ir máli, ekki síst í því ljósi að þetta inn­grip verður dag­inn áður en vertíðin átti að hefjast,“ seg­ir Bjarni Benediktsson í samtali við mbl.is.

„Okk­ar áhersla hef­ur verið á það að ráðherr­ann ætti að end­ur­skoða þessa ákvörðun um að fresta veiðunum, í raun og veru út allt veiðitíma­bilið, og leita frek­ar leiða til þess að gefa þeim sem stunda veiðarn­ar kost á að koma til móts við þessi sjón­ar­mið,“ seg­ir Bjarni í sam­tali við mbl.is.

Hon­um finnst að ræða þurfi málið við þá sem stunda veiðarn­ar um til­vik þar sem dráp dýr­anna taki of lang­an tíma.

„Það skorti að mínu áliti til­lit til allra þeirra sem eiga hags­muni hér und­ir. Bæði sem snert­ir at­vinnu­frelsi at­vinnu­rek­and­ans en líka allra þeirra sem höfðu gert ráðstaf­an­ir til þess að veiðarn­ar gætu farið fram. Þetta skipt­ir máli, ekki síst í því ljósi að þetta inn­grip verður dag­inn áður en vertíðin átti að hefjast,“ seg­ir Bjarni.

Hvað ef ráðherra ákveður að bannið verði ekki end­ur­skoðað?

„Við tök­um eitt skref í einu, þetta er okk­ar sjón­ar­mið og við von­umst til þess að ráðherr­ann horfi til þess og bregðist við og við met­um síðan fram­haldið,“ seg­ir Bjarni.

Er rík­is­stjórn­ar­sam­starfið í hættu?

„Nei ég ætla ekki að lýsa því þannig en við erum ekki sátt við aðdrag­anda þessa máls,“ seg­ir Bjarni.

Hann seg­ir að meðal ann­ars hafi verið rætt um hval­veiðar við gerð stjórn­arsátt­málanns.

„Sú krafa var viðruð þar að stjórn­in yrði sam­mála um að hval­veiðum yrði hætt. Við vor­um ekki reiðubú­in til þess að setja slík atriði inn í stjórn­arsátt­mál­ann,“ seg­ir Bjarni.

„Við erum að tala um at­vinnu­grein sem á sér mjög langa sögu á Íslandi. Með því að nota þessi lög og þessi rök til þess að slá vertíðina af, þá finnst mér verið að stappa nærri því að stöðva veiðar sem er þá mál sem ætti frek­ar að ræða á þing­inu.“

Teitur Björn Einarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í kjördæmi hvalveiðanna segir í Moggafrétt:

„Mála­til­búnaður ráðherr­ans er þannig all­ur í skötu­líki og því rétt­ast í stöðunni sem upp er kom­in að ákvörðunin verði nú þegar end­ur­skoðuð svo af­stýra megi al­var­legu tjóni fyr­ir fjölda fólks, tjóni fyr­ir starf­sem­ina í heild og jafn­framt forða rík­is­sjóði frá tjóni vegna fyr­ir­sjá­an­legr­ar skaðabóta­skyldu. Í ljósi þess hversu frek­lega er brotið gegn stjórn­skipu­legri meðal­hófs­reglu og hversu al­var­leg­ir ann­mark­ar eru á málsmeðferð fagráðs er ég þeirr­ar skoðunar að hægt sé að leiða fram aðra skyn­sam­lega og rétta niður­stöðu í þessu máli þar sem sam­an er gætt mál­efna­lega að dýra­vel­ferð en aðallega að grund­vall­ar­rétt­ind­um fólks sem eru vernduð af stjórn­ar­skránni,“ sagði Teit­ur Björn.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: