- Advertisement -

Það er bara ein leið

Sigurjón Magnús skrifar:

Segist hafa gert mistök sem stóu yfir í heil sjö ár. Það var svo Helgi Seljan sem stöðvaði vitleysuna með því að spyrjast fyrir. Þetta er dapur endi á embættisferli Sigríðar.

„Hvað skal með sjómann sem er á því – eldsnemma að morgni – kjöldraga óþokkan einu sinni – kjöldraga óþokkan einu sinni – svo af honum renni.“

Þetta er gamalt ráð og úrelt. En hvað skal með lögreglustjóra sem gerir sömu mistökin í sjö heil ár – og það í tveimur embættum?

Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri hefur leikið af sér. Aftur og aftur. Segist hafa gert mistök sem stóu yfir í heil sjö ár. Það var svo Helgi Seljan sem stöðvaði vitleysuna með því að spyrjast fyrir. Þetta er dapur endi á embættisferli Sigríðar.

Nema að hún verði flutt til og sett í annað embætti. Sem kann vel að verða gert. Forveri hennar fékk flottustu starfsloki fyrir að hafa virt heimildir að vettugi. Gerði fínustu starfsloksamninga við fjóra tryggðarvini í embættinu. Þurfti reyndar að taka út einhverju mánuði á göngum dómsmálaráðuneytisins.

Fullyrða má að fólk hafi almennt ekki smekk fyrir framferði eins og núverandi lögreglustjóri hefur viðhaft. Og það ár eftir ár. Dómsmálaráðherra er tvístígandi og virðist ekki vita hvað beri að gera. Það er bara ein leið.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: