- Advertisement -

Það er prumpulykt af þessum samningi segir Ragnar Reykás

Jóhann Þorvarðarson skrifar:

Aðstoðin ku hafa haft afdrifarík áhrif á örlög fyrirtækisins, framtíðarvirði og auðlegð prestsins. Hann hefur haldið áfram að dreifa bullinu í fjölmiðlum sjálfum sér til stórlegrar minnkunar.

Fundur neikvæða fólksins á Selfossi í liðinni viku var einhliða áróður. Haldnar voru einræður sem höfðu það eina markmið að letja fólk frá því að veita þjóðinni tækifæri til að sjá hvernig hugsanlegur aðildarsamningur að Evrópusambandinu lítur út. Engar spurningar úr sal voru leyfðar, málefnalegt samtal var bannað.

Þetta var eins og trúarsamkoma þar sem æðsti prestur Ísafjarðar mátti helst mæla. Sá prédikari talaði auðvitað niður Evrópusambandið eins og ætlast var til. Á sama tíma þagði hann næfurþunnu hljóði um stóra fjárstyrki sem fyrirtæki hans þáði frá sambandinu og öðrum evrópskum aðilum. Aðstoðin ku hafa haft afdrifarík áhrif á örlög fyrirtækisins, framtíðarvirði og auðlegð prestsins. Hann hefur haldið áfram að dreifa bullinu í fjölmiðlum sjálfum sér til stórlegrar minnkunar.

Óhætt er að segja að presturinn hafi brotið eitt af boðorðunum með hálfsannleik og sannast kannski hið fornkveðna að margur verður af aurum api. Ragnar Reykáss var á svipuðum
nótum samanber hér.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: