Frammi fyrir þessu virðist ríkisstjórn Kristrúnar leggja áherslu á niðurskurð og minni halla ríkissjóðs, eins og við enginn hafi tekið eftir að kennisetningar nýfrjálshyggjunnar eru löngu fallnar og öllum ljóst að þær brjóta niður samfélög, byggja þau ekki upp.
Gunnar Smári Egilsson.
Umræðan/Facebook: Gunnar Smári skrifaði:
Þegar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við var hraði verðbólgunnar síðustu þrjá mánuði 3,1% en er nú 4,6%. Verðbólga síðustu tólf mánuði var 4,8% en er núna 4,5%. Enginn bati og horfur ekki góðar.
Matur hefur hækkað um 5,5% frá því ríkisstjórnin tók við og húsaleiga um 7,7%. Útgjöld hinna tekjulægstu hafa því hækkað um 7%.
Mikil og alvarleg breyting til hins verra.
Þegar ríkisstjórnin tók við var atvinnuleysi 2,2% en er nú 6,5%. 4000 færri eru starfandi í dag en fyrir ári og 6700 fleiri atvinnulausir. Mikil og alvarleg breyting til hins verra.
Þegar ríkisstjórnin tók við hafði Seðlabankinn spáð 7,1% hagvexti 2025-27. Í endurskoðaðri spá í síðasta mánuði spáir bankinn 5,2% hagvexti þessi ár. Munurinn er 100 milljarðar minni landsframleiðsla 2027 en ráð var fyrir gert.
Frá því að ríkisstjórnin tók við hefur krónan fallið um 2% gagnvart evru.
Þegar ríkisstjórnin tók við voru stýrivextir Seðlabankans 8,50% en eru nú 7,25%. Raunvextir stýrivaxta eru enn háir þótt atvinnuleysi sé að aukast og hagvöxtur að minnka; voru 3,5% en er nú 2,6%.
Þegar ríkisstjórnin tók við voru fastir vextir íbúðalána til 3ja ára m.v. 80% veðhlutfall hjá Landsbanka 8,60% (raunvextir 3,6%) en eru núna 9,18% (raunvextir 4,5%). Vaxtabyrði af 50 mkr. láni hefur aukist um rúmar 24 þús. kr. á mánuði að raunvirði.
Þegar ríkisstjórnin tók við voru 7.221 ibúð í byggingu samkvæmt HMS en samkvæmt síðustu talningu eru 5.907 íbúðir í byggingu.
Viðvarandi verðbólga (og þar með háir vextir), minnkandi hagvöxtur, viðvarandi húsnæðisekla og aukið atvinnuleysi er herfileg blanda. Og frammi fyrir þessu virðist ríkisstjórn Kristrúnar leggja áherslu á niðurskurð og minni halla ríkissjóðs, eins og við enginn hafi tekið eftir að kennisetningar nýfrjálshyggjunnar eru löngu fallnar og öllum ljóst að þær brjóta niður samfélög, byggja þau ekki upp.