ÞÁTÍÐARSINNAR og JÁ-MENN
Guðmundur Andri Thorsson skrifaði grein sem Hannes Hólmsteinn brást við:
Okkur stendur ekki ógn af lýðræðisríkjum Evrópu….
Guðmundur Andri: „Smám saman skila sér í Neihúsið þau sem mynduðu síðustu ríkisstjórn Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Vg og það rifjast upp fyrir manni um hvað sú ríkisstjórn var mynduð: óbreytt ástand. Krónuhagkerfið með sinni verðtryggingu og vaxtaokri sem er svo „ósköp frjálst“. Þetta eru ekki fullveldissinnar heldur þátíðarsinnar. Steingrimur J. vísar í nei-rökum sínum til reynslunnar af fyrri viðræðum um aðild að ESB, þegar Ísland var raunþrota ríki eftir útrásaræði undir forystu tveggja annarra leiðtoga þátíðarsinna og skoðanabræðra Steingríms, þeirra Ólafs Ragnars og Hannesar Hólmsteins. Nú eru aðrir tímar, samningsstaða okkar allt önnur og betri og viðræður væntanlega ekki undir stjórn ráðherra sem staðráðnir eru í að láta samninga ekki takast, eins og raunin var síðast.
Okkur stendur ekki ógn af lýðræðisríkjum Evrópu, eins og þátíðarsinnarnir sjá fyrir sér, og eru enn staddir í hugarheimi þar sem „gömlu nýlenduveldin“ voru óvinurinn en töldu að við ættum óljósa samleið með nýfrjálsum ríkjum og sósíalísku ríkjunum „þrátt fyrir allt“ í drauminum um að Eyjólfur hresstist kannski. Það gerði hann ekki heldur dó og gekk svo aftur sem skelfileg forynja. En hægra megin vildu menn setja allt sitt traust á Kanann.
Við eigum heima í bandalagi við ríki….
Ógnin sem steðjar að okkur kemur nú úr báðum þessum áttum. Annars vegar frá eina heimsvaldasinnaða og árásargjarna ríkinu innan álfunnar, Rússlandi, og hins vegar og enn frekar úr vestri þar sem forðum var bakhjarl okkar í varnar- og öryggismálum en er nú stjórnað af fasistum sem fyrirlíta lýðræðið og réttarríkið og eru haldnir 19. aldarlegum landvinningaórum og heimsvaldastefnu sem tekur ekki nokkurt tillit til alþjóðalaga eða virðir fullveldi ríkja. Þetta eru menn sem stjórnast af og stjórna með grimmd og græðgi.
Hvað sem líður hugmyndum þátíðarsinnanna þá er ekki í boði að vera ósýnileg. Við þurfum að líta til framtíðarinnar en ekki standa vörð um heimsmynd og úrræði fortíðarinnar. Við eigum heima í bandalagi við ríki sem hafa lýðræði og virðingu fyrir mannréttindum borgaranna að leiðarljósi. Við eigum ekki lengur að lúskrast þar úti í horni auðmjúk og áhrifalaus í skjóli Norðmanna, eins og hver önnur nýlenda, heldur bera höfuðið hátt, þjóð meðal þjóða. Allavega ekki útiloka fyrirfram möguleikana á umbótum. Við höfum ekki öll hag af því að standa vörð um óbreytt ástand. Raunar bara þau sem eiga völd sín og áhrif undir því.“
Hannes Hólmsteinn brást við með þessari grein:
Þá er það Hannes Hólmsteinn: „Ég hlýt að mega leggja hér orð í belg, úr því að þú nefndir mitt nafn. Já, það er rétt, að rekja má útþenslu bankanna til okkar Davíðs að nokkru leyti, því að hér var stjórnarfar svo gott árin eftir 1991, þegar ríkisfyrirtæki voru seld og andvirðið notað til að greiða upp skuldir ríkisins, kvótakerfið og lífeyrissjóðirnir hvort tveggja treyst og skattar lækkaðir, að lánstraust Íslands jókst mjög erlendis. Gott orðspor landsins smitaðist út í bankana, sem fengu eins mikið lánsfé erlendis og þeir vildu, svo að þeir þöndust út. Bankarnir nutu líka EES samningsins, sem gerði þeim útþensluna auðveldari. Engum okkar datt þá í hug, síst bankamönnunum sjálfum, að allar dyr myndu lokast fyrir bönkunum í lausafjárkreppunni 2007–2009, þar á meðal að bandaríski seðlabankinn myndi neita íslenska seðlabankanum um sömu lausafjárfyrirgreiðslu og seðlabankar Svíþjóðar, Danmerkur og Noregs fengu frá honum og að breska ríkisstjórnin myndi neita bönkum í eigu Íslendinga um sömu lausafjárfyrirgreiðslu og öllum öðrum breskum bönkum stóð til boða. Bankar eins og Danske Bank, RBS í Skotlandi og UBS í Sviss hefðu fallið, hefðu þessir aðilar ekki hlaupið undir bagga með þeim. Eftir á að hyggja var þessi feikilega útþensla bankanna auðvitað ógætileg, en það var ekki fyrr en eftir hrunið sem allir sáu það fyrir.
„…að vera einskis þegnar, en allra vinir.“
Það er afar ómaklegt að segja, að þeir Ólafur Thors, ömmubróðir þinn, og Bjarni Benediktsson hafi sett allt sitt traust á Bandaríkjamenn. Þeir töldu og aðrir ábyrgir stjórnmálamenn með þeim, að við yrðum að tryggja öryggi okkar, og Bandaríkjamenn voru hinir einu, sem höfðu vilja og getu til þess að rétta okkur hjáparhönd. Því var varnarsamningurinn gerður við Bandaríkin. Jafnframt var samstarf okkar við Norðurlöndin eflt með aðild að Norðurlandaráði og við grannþjóðir í Evrópu innan Atlantshafsbandalagsins og síðar meir með aðild að EFTA. Stefna þeirra Ólafs og Bjarna var hin sama og Einars Þveræings: að vera einskis þegnar, en allra vinir. Og hún var hin sama og Jóns Sigurðssonar: að versla við alla, en ekki aðeins suma. Þess vegna snerum við okkur til dæmis til Rússa til að selja fisk, þegar við lentum í erfiðleikum í viðskiptum við Breta.
Ég veit ekki til þess, að neinn í nei-hreyfingunni telji okkur stafa ógn af ESB, þótt jaðarfólk geipi í öllum herbúðum. Öðru nær. Það er mikilvægt að geta verslað á innri markaði Evrópu, eins og við gerum í krafti EES samningsins. Þótt við stöndum, þar sem Ameríku- og Evrópuflekarnir mætast, erum við Evrópuþjóð, en eigum helst samleið með næstu nágrönnum okkar, Bretum og Norðmönnum, og ef til vill líka með Sviss, sem býr að langri lýðræðishefð. Um sama leyti og við afsöluðum okkur fullveldinu í hendur Noregskonungi árið 1262, var Sviss að stofna þjóðveldi, Genossenschaft, sem hefur löngum verið fyrirmynd annarra þjóða. Og það reyndist okkur illa að flytja valdið úr landi. Stundum höfðu kóngar samúð með þessu litla, afskekkta landi, en þeir höfðu engan skilning á því, aðstæðum þess og sérþörfum. Prófessor Þráinn Eggertsson hefur lýst því, hvernig þeir læstu okkur niður í fátæktargildru með bandalagi sínu við íslensku landeigendastéttina, vistarbandinu, verðlagningu sjávarafurða langt undir heimsmarkaðsverði og banni við vetursetu útlendinga.
Það væri hörmulegt, ef ESB leysist upp, eins og það kann að gera á næstu árum, ekki síst vegna innflytjendamála, en líka sakir fyrirsjáanlegs fjárhagsvanda. ESB er í eðli sínu æskilegt bandalag um frið í Evrópu og frjálsa verslun. Það hentar mörgum þjóðum á meginlandinu, en það hentar okkur ekki vegna sérstöðu okkar. Við þurfum varnir, en ESB er alls ófært um að tryggja þær. Við þurfum verslun, ekki aðeins við ESB, heldur líka við aðrar þjóðir í krafti fríverslunarsamninga, sem við höfum gert, til dæmis við Kína núna og seinna meir við ýmsar aðrar þjóðir eins og Brasilíu og Mexíkó. Það er aðeins helmingur af verslun okkar við ESB, eins og nýútkomin skýrsla Arnar Arinbjarnarsonar sýnir, og meiri hlutinn af gjaldeyristekjum okkar er í Bandaríkjadölum.
Þegar nú á að nota Trump sem grýlu á Íslendinga…
Þegar nú á að nota Trump sem grýlu á Íslendinga, má hafa það hugfast, að hann á aðeins eftir að verða forseti í tvö og hálft ár í viðbót. Það er líka rangt, að hann sé fasisti, og sýnir það mikinn misskilning á eðli fasismans, til dæmis fasisma Mússólínis. Trump er umfram allt kaupsýslumaður, sem reynir með blíðmæli og hótunum á víxl að ná góðum samningum. Raunar leiðir talið um fasisma hugann að öðru. Frjálslynd lýðræðishefð hefur átt erfitt uppdráttar í Evrópu. Helstu vígi hennar eru Norðurlöndin og Bretland. Meginlandið hefur hvað eftir annað verið á valdi einræðisherra, sem reyndu að „sameina Evrópu“: Karl V., Lúðvík XIV., Napóleon og þeir Hitler og Stalín. Það lá við, að þeir Hitler og Stalín gætu skipt meginlandinu með sér í griðasáttmálanum 23. ágúst 1939. Árið 1941 voru aðeins sex lýðræðisríki í Evrópu, Írland, Bretland, Ísland, Svíþjóð, Finnland og Sviss. Með þessu er ég aðeins að benda á, að hin frjálslynda lýðræðishefð stendur ekki mjög traustum fótum á meginlandinu. Frakkar eru til dæmis enn með miðstýringaráráttu í anda skattheimtumannsins Colberts og jakobínans Robespierres. Þegar Tocqueville greindi frönsku stjórnarbyltinguna, komst hann að þeirri niðurstöðu, að hún væri í rökréttu framhaldi af síaukinni miðstýringu konunganna næstu aldir á undan. Og enn halda Frakkar fram „dirigisme“ eða stjórnlyndi í Evrópu.
Það kom vel fram í Icesave-málinu, hversu miklu máli skiptir að ganga upprétt til leiks. Við felldum tvisvar samninga og gátum skotið málinu til EFTA dómstólsins, þar sem dr. Carl Baudenbacher komst með glöggum lögfræðilegum rökum að þeirri niðurstöðu, að íslenska ríkið hefði enga greiðsluskyldu við viðskiptavini Landsbankans. Það hefði farið eftir reglum EES og ESB um innstæðutryggingar, og mætti þar við sitja. Í því máli áttum við nánast enga vini, og sjálft ESB gerðist aðili að máli Breta gegn okkur.
…að ekki verði aftur snúið.
Þið jámenn látið eins og gengið sé til samninga svipað og þegar tvö ríki semja sín í milli um viðskipti eða samstarf. Svo er ekki. Villandi er að tala um samninga. Þetta er aðildarumsókn, og verði hún samþykkt 29. ágúst, þá hefjast viðræður um aðild. Þá eru allir 33 samningskaflarnir hjá ESB fyrst opnaðir, aðlögun í hverjum kafla framkvæmd, og köflunum síðan lokað hverjum af öðrum. Þegar öllum köflunum hefur verið lokað og aðlögun að regluverki ESB fullnægir kröfum ESB, er orðinn til aðildarsamningur, sem lagður er fyrir öll 27 aðildarríkin og væntanlega líka í þjóðaratkvæðagreiðslu á Íslandi. Auðvitað verður ESB allt af vilja gert að slaka til við Íslendinga. En svigrúmið til þess er mjög takmarkað. Regluverk ESB, acquis communautaire, kveður skýrt á um valdsvið þess. Það, sem er til dæmis á einkavaldsviði þess, eru sjávarútvegsmál, tollamál og peningamál.
Þetta er ekki könnunarleiðangur, heldur aðildarumsókn. Og hættan er sú, ef við förum í þessa ferð, að ekki verði aftur snúið. Konungsgarður er rúmur inngöngu, en þröngur útgöngu, sögðu fornmenn. Þetta á enn við.“