- Advertisement -

Þurfum ekki ESB til að ná niður verðbólgu og vöxtum

„Ég mun sjálf segja nei. Það er einfaldlega ískalt hagsmunamat mitt að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins en innan þess.“

Guðrún HAfsteinsdóttir.

„Ríkisstjórnin lofaði að leysa verðbólgu og vexti hér á Íslandi og einbeita sér að brýnum verkefnum innanlands. Nú notar hún hins vegar eigið árangursleysi sem rök fyrir því að ganga í Evrópusambandið. Það er fullkomin uppgjöf.

Við þurfum ekki ESB til að ná niður verðbólgu og vöxtum. Það eru heimaverkefni sem við getum leyst sjálf.

Nú segir utanríkisráðherra ætla að tryggja fullt forræði yfir auðlindum okkar. En hún notar aldrei orðið varanlegt. Það skiptir öllu máli. Tímabundin sérlausn eða aðlögun er ekki það sama og varanlegt forræði Íslendinga yfir eigin auðlindum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það hefur verið látið að því liggja að við Sjálfstæðismenn viljum ekki að þjóðin kjósi. Það er rangt. Við óttumst hvorki þjóðina né niðurstöðuna.

Ég mun sjálf segja nei. Það er einfaldlega ískalt hagsmunamat mitt að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins en innan þess.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: