
Úlfar Hauksson skrifaði:
„Trúðarnir í stjórnarandstöðunni halda áfram að moka holu… með rauða nefið útá kinn. Kristrún Frostadóttir – okkar glæsilegi forsætisráðherra – var frábær í Kastljósi. Hún ber svo sannarlega höfuð og herðar yfir alla þessa sí suðandi stjórnarandstæðinga sem í villu sinni halda að þeir hafi neitunarvald í þinginu. Fláráðar sem moka ekki bara eigin holu… heldur bograst líka við að mynda gjá á milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins. Allt í boði þröngra sérhagsmuna. Hin móðgunargjarna stjórnarandstaða ætti að skammast sín og biðja þjóðina afsökunar…“