„Ábyrgð valdhafa að fara vel með orðin, staðreyndirnar og sannleikann hefur sjaldan verið meiri.“
Hildur Sverrisdóttir.
Umræðan: Hildur Sverrisdóttir skrifaði:
„Reykvíkingar eru öllu vanir þegar kemur að því að upplifa allt annan veruleika en kjörnu fulltrúarnir sem mynda meirihlutann tala um. Fjárhagslegar sjónhverfingar og flottar þrívíddarmyndir af brosandi gervifólki í blómlegum hverfum í fjarlægri framtíð sem eiga að leysa öll vandamál duga ekki.
Fólk kýs á endanum raunveruleikann. Það eru allar líkur á að vinstriflokkarnir í borginni verði uppiskroppa með liðsauka til að tjasla saman nýjum meirihluta sem fer stöðugt minnkandi og loksins verði löngu tímabærar breytingar í borginni.
Atvinnuleysi mældist samt 6,5%…
Það ætti ekki að koma á óvart að svipuðum brögðum sé beitt af hálfu vinstristjórnarinnar sem nú er við völd í landinu, ríkisstjórnar sem hefur staðið fyrir meiri áróðurs- og frasavæðingu stjórnmálanna en áður hefur lengi sést hér á landi. Auk þess hefur að eigin sögn sjaldan ef nokkurn tíma gengið betur að ná tökum á efnahagsmálunum, verðbólgunni, stöðu heimilanna.
Allt er í toppmálum. Planið er að virka. Allir sem voga sér að efast um yfirlýsingarnar eru hælbítar og biturt úrtölufólk sem unir ekki stöðu sinni og öfundast út í ráðsnilldina.
Atvinnuleysi mældist samt 6,5% í síðustu mælingu Hagstofunnar. Það eru tölur sem hafa ekki sést síðan í heimsfaraldrinum. Höfuðatvinnugreinarnar lýsa alvarlegri stöðu og það verður fróðlegt að sjá hagvöxt síðasta árs. Verðbólgan hefur nokkurn veginn staðið í stað frá kosningum og virðist jafnvel vera á uppleið. Vextirnir hafa því sömuleiðis varla haggast.
Þrátt fyrir verðmætasköpunarhaustið, tiltektina, leiðréttinguna, lýðræðisákvæðið, aðhaldið á tekjuhliðinni og öll nýyrðin og frasana (Árnastofnun gæti þurft tekjuauka vegna yfirvinnu hjá Íslenskri nútímaorðabók árið 2025) þá finnur fólk að hlutirnir ganga ekki betur, róðurinn er þyngri, húsnæðismarkaðurinn er í lamasessi.
Almenningur hefur jú á endanum valdið.
Það kemur að því að fólk velur raunveruleikann umfram nánast sovét-skotnar lofræður fólks um sjálft sig og stöðu lands og þjóðar. Almenningur hefur jú á endanum valdið. En almenningur verður þá að fá réttar upplýsingar.
Upplýsingaóreiða er ógn við lýðræðið. Að láta það átölulaust að valdhafar kalli hlutina síendurtekið ekki sínum réttu nöfnum í gegndarlausri áróðursvæðingu stjórnmálanna er hluti af upplýsingaóreiðu.
Að lýðræðinu steðjar ógn víða, við vitum það öll. Það er á ábyrgð okkar að passa upp á það. Það er því á ábyrgð okkar allra að fara vel með sannleikann, vera gagnrýnin á það sem við heyrum, jafnvel þótt við teljum okkur í liði með þeim sem talar. Við eigum líka að reyna eftir megni að kynna okkur staðreyndir og gera þá kröfu á fólk, sérstaklega þau sem fara með völd, að það geti staðið fyrir máli sínu og geri það. Ábyrgð valdhafa að fara vel með orðin, staðreyndirnar og sannleikann hefur sjaldan verið meiri.“