Guðrún Hafsteinsdóttir, fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir hugmyndir Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra vera fengnar úr sinni smiðju. Það sem núverandi dómsmálaráðherra kallar „norsku leiðina“, segir Guðrún ekki vera neitt norska leið. Norðmenn hafa þá víst nýtt sér leið Guðrúnar og Sjálfstæðisflokksins.
Okkur yrðum öllum brugðið ef Sjálfstæðisflokkurinn efnir til málþófs vegna þessa máls. Þeirra eigin mál. Víst er að flokkurinn getur ekki gert neitt í norska Stórþinginu.
Annars er svo komið fyrir Sjálfstæðisflokknum að hann engist á króknum og sér enga leið sér til bjargar.
„Enda er ekkert nýtt í máli dómsmálaráðherra. Það eru engar nýjar hugmyndir. Allt það sem að hún hefur verið að segja og nefndi í þessari grein sem hún skrifaði í gær – og eins það sem hún hefur verið að segja á síðustu vikum – þetta eru í raun allt stefnumál Sjálfstæðisflokksins,“ segir Guðrún á Vísi og eins þetta:
„Og þessar breytingar studdu ekki Viðreisn né Samfylkingin þegar greidd voru atkvæði um þær breytingar á Alþingi Íslendinga í fyrra. Við í Sjálfstæðisflokknum munum styðja allar breytingar í þá very að ná meiri festu í þennan málaflokk,“ segir Guðrún við Vísi.