Hilmar Þór Björnsson arkitekt skrifaði:
Nú hefur komið í ljós að Háskóli Íslands, Árnastofnun, Lansbókasafnið og Félagsstofnun Stúdenta mótmæltu hugmyndum USK um skipulag á bensínstöðvarlóðinni við Birkimel.
En mótmælunum var haldið leyndum.
Hér fylgir formlegt bréf sem Jón Atli Benediktsson, Guðrún Nordal, Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir og Guðrún Björnsdóttir sendu á borgina.
Að sögn fylgdi Jón Atli rektor HÍ þessu eftir með fundi með borgarstjóra.
Eiginlega er það ótrúlegt en allt bendir til þess að bréfi þessu hafi verið stungið ofan í skúffu og haldið kyrfilega leyndu. Það er ámælisverð stjórnsýsla sem gengur alls ekki
Ég get ekki skilið þetta öðruvísi en svo að verið sé að hilma yfir ömurlegar afleiðingar bensínstöðvasamninganna í stað þess að vinda ofan þeirri vitleysu.
Þetta er mjög alvarlegt mál sem þarf að fá skoðað ofaní kjölinn sem allra fyrst.
