Varnaðarorð virt að vettugi
„Það er ekki mikil reisn yfir því að vera nytsamur meinleysingi í tannhjóli ríkisstjórnar sem grefur undan atvinnuöryggi og drepur í dróma frumkvæði.“
Jens Garðar Helgason skrifar grein í Mogga dagsins. Þar finnur hann að ýmsu sem ríkisstjórnin hefur gert og hyggst gera og hverjar hugsanlegar afleiðingar verða. Hér á eftir er lokakafli hreinar varaformanns Sjálfstæðisflokksins:
„Það styttist í að þingheimur komi saman og fjárlög fyrir árið 2027 verði birt. Engin merki eru um að ríkisstjórnin ætli sér að hverfa frá auknum álögum á ferðaþjónustuna. Þvert á móti er fjármála- og efnahagsráðherra nú farinn að reyna að réttlæta hækkun virðisaukaskattsins opinberlega. Þegar virðisaukaskattshækkunin var kynnt í vor gerðu meðal annarra Vök Baths við Urriðavatn á Austurlandi alvarlegar athugasemdir við áformin. Enda er raunveruleikinn sá að verði þau að veruleika er líklegra en ekki að loka þurfi baðlóninu yfir erfiðustu vetrarmánuðina. Þessi varnaðarorð hafa hingað til verið virt að vettugi og landsbyggðarþingmenn stjórnarmeirihlutans virðast ætla að láta enn einn landsbyggðarskattinn yfir sig ganga eins og ekkert sé sjálfsagðara. Það virðist engu máli skipta þó störf í þeirra heimabyggð verði undir. Það er ekki mikil reisn yfir því að vera nytsamur meinleysingi í tannhjóli ríkisstjórnar sem grefur undan atvinnuöryggi og drepur í dróma frumkvæði og nýsköpun í heimabyggð.“