- Advertisement -

Við ætlum ekki að hætta í EES!

„Það liggur alveg fyrir að þessi ríkisstjórn, þrátt fyrir að hún verji EES-samninginn, stundar mjög öfluga hagsmunabaráttu og það munum við áfram gera.“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.

„Nú þegar ríkisstjórnin er orðin u.þ.b. ársgömul hefur komið í ljós að hún ætlar sér ekki að því er virðist, a.m.k. ekki á sínu fyrsta ári, að standa við neitt af stóru loforðunum sem gefin voru fyrir kosningar. Hæstv. forsætisráðherra lofaði því að skattar yrðu ekki hækkaðir á almenning. Nú horfum við upp á röð skattahækkana og meira í vændum,“ sagði Sigmundur Davíð í óundirbúnum fyrirspurnum. Hann beindi spurningum sínum til forsætisráðherra, Kristrúnar Frostadóttur.

„Hæstvirtur forsætisráðherra ætlaði líka að spara í rekstri ríkisins og ná þannig tökum á verðbólgu og vöxtum. Engu að síður var kynnt fjárlagafrumvarp sem gerði ráð fyrir meiri ríkisútgjöldum en nokkurt annað slíkt frumvarp, áframhaldandi hallarekstri ríkisins, hallarekstri sem mun bara aukast eftir þau áföll sem dunið hafa á, nú á hinu svokallaða verðmætasköpunarhausti. Meira að segja félagar hæstvirts forsætisráðherra í ríkisstjórn, ungliðar í Viðreisn, skammast í Samfylkingunni fyrir skattasýki flokksins og tala um skattfylkinguna. Þetta eru flokksfélagar hæstvirts fjármálaráðherra sem tala svona um Samfylkinguna.

Spurning mín er þessi, frú forseti: Hvenær hætti hæstvirtur forsætisráðherra við að reyna að standa við kosningaloforðin?

Þú gætir haft áhuga á þessum

með enn þá meiri skattlagningu.

Væri ekki ráð að byrja á því að falla frá áformum um álagningu refsiskatta á flugsamgöngur og vöruflutninga með skipum? Enda óþarft með öllu og eingöngu gert til að gleðja Evrópusambandið á sínum tíma en nú þurfum við væntanlega ekki að leggja okkur fram við það að gefa Evrópusambandinu enn þá meira fjármagn með enn þá meiri skattlagningu íslensks almennings,“ sagði Sigmundur Davíð.

Kristrún svaraði: „Þetta er frekar víðfeðm spurning. Þessi ríkisstjórn hefur lagt fram fjármálaáætlun með rúmlega 100 milljarða hagræðingu. Það stendur. Það er verið að bæta afkomu ríkissjóðs á milli ára. Það stendur. Það er stefnt að hallalausum fjárlögum 2027. Það mun standa. Það er verið að gera allt sem við getum til að standa við það. Ég veit ekki hvort ég á að fara að telja upp öll mín kosningaloforð. Ég átta mig alveg á því á hvaða vegferð háttvirtur þingmaður er.

Við erum auðvitað ekki sammála í ákveðnum málaflokkum vegna þess að hann talar fyrst og fremst fyrir því að draga úr tekjustraumum og auka útgjöld. Hann vill fella niður ákveðnar breytingar sem eru að eiga sér stað, t.d. mögulega á bifreiðum sem reyndar hefur staðið til að gera í fjögur, fimm ár vegna þess að gjaldtaka á bifreiðum hefur hrunið, sem hefur m.a. gert það að verkum að það hefur ekki verið fjármagn til þess að gera við vegakerfið okkar. Hann vill mögulega falla frá því en ekki sækja neinar aðrar tekjur á móti. Svo vill hann fara í önnur útgjöld. Við erum ekki þannig ríkisstjórn. Við erum tilbúin að vera ærleg með hvað við ætlum að gera.

…byggja upp öfluga atvinnukjarna…

Ef hann er að kalla umræddar breytingar, t.d. á bifreiðagjöldum, skattahækkanir, þá gott og vel. Við vitum hins vegar að við þurfum að standa undir þessu af því að það er líka skattahækkun á þá sem nota vegakerfið mikið að þurfa að búa við lélegar samgöngur. Það hefur gert það að verkum að ákveðin atvinnusvæði hafa grotnað niður. Talandi um verðmætasköpunarhaust þá vitum við að þetta er auðvitað forsenda þess að hægt sé að byggja upp öfluga atvinnukjarna hringinn í kringum landið.

Varðandi ákvörðun Evrópusambandsins um að undanskilja okkur frá varúðarráðstöfunum hef ég eitt um það að segja: Við ætlum ekki að hætta í EES, við ætlum ekki að hætta í EES, við ætlum ekki að hætta í EES. Þetta er einn besti og frábærasti viðskiptasamningur sem Ísland hefur gert. Við ætlum ekki að grafa undan honum þótt við séum ósátt við þessa ákvörðun,“ sagði Kristrún og Sigmundur steig í pontu á ný.

Sigmundur Davíð: „Þetta var ekki mjög upplýsandi svar. Það kom reyndar fram að ríkisstjórnin ætlar ekki að hætta í EES. Ég held að enginn hafi gert ráð fyrir því að það væru áform um það hjá þeim, en um leið kom í ljós hvernig þessi ríkisstjórn nálgast EES-samninginn og þennan ótta. Hún þorir ekki einu sinni að verja íslenska hagsmuni með þeim ákvæðum sem EES-samningurinn leyfir og gerir ráð fyrir að ríki geti beitt til þess að til að verja stöðu sína.“

Kristrún svaraði: „Það hefur átt sér stað mjög virk hagsmunagæsla gagnvart EES á þessu kjörtímabili. Það liggur alveg fyrir. Það liggur alveg fyrir að þessi ríkisstjórn, þrátt fyrir að hún verji EES-samninginn, stundar mjög öfluga hagsmunabaráttu og það munum við áfram gera.

„Háttvirtur þingmaður þarf ekki að hafa áhyggjur af því þrátt fyrir að við viljum virða EES-samninginn að við stöndum ekki vörð um hagsmuni Íslands. Það verðum við að sjálfsögðu að gera.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: