- Advertisement -

Víðsýnasti þingmaður Sjálfstæðisflokksins

 

Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar og fyrrverandi fjármálaráðherra, skrifaði:

„Við skulum ekki þykjast vera of fín til þess að íhuga hvort slík aðild sé valkostur fyrir Ísland. Að sjálfsögðu hlýtur hún að vera það.“

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

„Þegar Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sagði af sér þingmennsku missti Sjálfstæðisflokkurinn sinn víðsýnasta þingmann.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Um síðustu helgi sagði Þórdís á Skálholtshátíð: ,,Við þurfum að vera auðmjúk gagnvart óvissunni og gera okkur grein fyrir því að hið eina sem við getum gert er að vanda okkur í hverju skrefi þannig að sem bestar líkur séu á því að okkur takist að viðhalda góðri stöðu okkar, efla hana og tryggja bæði sjálfstæði okkar og áframhaldandi samstarf og viðskipti við aðrar þjóðir sem við viljum eiga samleið með.

Í slíku samstarfi felst gríðarlegur ábati fyrir land og þjóð, en einnig skyldur sem fullvalda þjóð ber með stolti og ýmsar málamiðlanir í samvinnu við önnur ríki í þágu sameiginlegra hagsmuna og markmiða.

Hvort sem okkur geðjast að Evrópusambandinu eða ekki, og hvort sem við teljum Ísland eigi erindi að ganga alla leið inn í það samstarf, þá verður ekki fram hjá því litið að þar inni eru 27 frjálsar og fullvalda þjóðir sem bjóða upp á einna bestu lífskjör og mest frelsi sem þekkist á byggðu bóli.“

„Við skulum ekki þykjast vera of fín til þess að íhuga hvort slík aðild sé valkostur fyrir Ísland. Að sjálfsögðu hlýtur hún að vera það.“

Eigum við ekki öll að segja Já þann 29. ágúst og gefa okkur tíma til þess að íhuga málið?


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: