- Advertisement -

Vill rækta kjöt frekar en dýr

 „Alþingi ályktar að fela sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að kanna stöðu kjötræktar og skipuleggja aðgerðaáætlun um innleiðingu tækni fyrir íslenskan landbúnað með það að markmiði að flýta fyrir því að kjötrækt verði samkeppnishæf við afurðir af hefðbundinni veiði eða ræktun dýra til manneldis,“ segir í þingsályktun Björns Leví Gunnarssonar. 
„Samantekt um stöðu kjötræktar liggi fyrir eigi síðar en 1. mars 2019 og ráðherra leggi fram tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda hvað varðar kjötrækt eigi síðar en 1. nóvember 2019,“ segir þar einnig.

Í greinagerðinni segir meðal annars: „Helsti kostur þess að rækta kjöt umfram dýrarækt til manneldis eru umhverfisáhrifin og, þótt það eigi síður við á Íslandi, að ekki þarf að nota sýklalyf í kjötrækt. Viðamiklar rannsóknir hafa verið gerðar á umhverfisáhrifum kjötræktar. Kjötrækt sendir 78–96% minna af gróðurhúsalofttegundum frá sér en hefðbundin dýrarækt, notar 99% minna landrými og 82– 96% minna af vatni. Einungis fuglarækt notar minni orku, annars þarf kjötrækt 7–45% minni orku en hefðbundin dýrarækt.“

„Óháð því hvað Ísland gerir til þess að undirbúa tilkomu þessarar tækni til matvælaframleiðslu mun hérlendis þurfa að glíma við þær breytingar sem kjötrækt hefur á neysluvenjur. Þó að eftirspurn eftir kjöti af dýrum hverfi örugglega ekki minnkar hún líklega mjög, þó ekki væri nema vegna umhverfisáhrifa. Það hefur mögulega veruleg áhrif á landbúnað og sjávarútveg á Íslandi sem og annars staðar í heiminum. Því er mjög brýnt að Ísland sé undirbúið fyrir þessar tækniframfarir, bæði með aðgerðaáætlun og stefnu.“

Fréttin er endurbirt og uppfærð þar sem Björn Leví endurflytur málið.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: