- Advertisement -

Vissu Sjálfstæðismenn um vilja Guðrúnar þegar hún var kjörin formaður flokksins?

Björn Birgisson skrifaði áhugaverðagrein um Guðrúnu Hafsteinsdóttur formann Sjálfstæðisflokksins. Förum rúm tíu ár til baka.

„Guðrún vildi verða formaður Samtaka iðnaðarins 2014 og henni tókst það út á boðaða stefnu sína, meðal annars að hún vildi ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið og láta þjóðina kjósa um aðildarsamning,“ skrifar Björn.

„Í kosningunni um formann Samtaka iðnaðarins 2014 voru tveir frambjóðendur í kjöri:

Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri Kjörís og stjórnarmaður í SI.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Svana Helen Björnsdóttir, þáverandi formaður stjórnar SI og stofnandi/stjórnarformaður Stika ehf.

Á aðalfundi SI sem haldinn var í Laugardalshöll þann 6. mars 2014 var mjög jöfn keppni milli Guðrúnar og Svönu.“

Úrslit urðu:

  • Guðrún fékk 52,4 % (106.151 atkvæði)
  • Svana Helen fékk 43,8 % (88.684 atkvæði)
  • Aðrir fengu 3,8 % atkvæðanna.

„Því var Guðrún Hafsteinsdóttir kjörin formaður SI, með tæplega 8 prósentustiga forskoti.

Guðrún lýsti afstöðu sinni skýrt í ræðu fyrir kosningu, þar á meðal varðandi aðildarviðræður við ESB, afnám virðisaukaskatts á vinnu iðnaðarmanna, einföldun skattkerfis og eflingu átaksins „Allir vinna“ til að draga úr svörtum vinnumarkaði.

Guðrún gegndi svo formennsku hjá Samtökum iðnaðarins frá mars 2014 til ársins 2020.

Ég treysti dómgreind þjóðarinnar í þessu stóra máli.

Guðrún sagði í tilkynningu um framboðið 2014 að hún vildi ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið og kjósa um aðildarsamning.“

Björn skrifar áfram:

„Í tilkynningu hennar sagði orðrétt:

„Ná þarf sem hagstæðustu samningum fyrir allar atvinnugreinar og almenning og leggja niðurstöðuna í dóm kjósenda í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Ég treysti dómgreind þjóðarinnar í þessu stóra máli.“

Afnema ætti virðisaukaskatt af vinnu iðnaðarmanna á byggingarstað. Það er gríðarlega mikilvægt að minnka svarta vinnu og ég vil festa í sessi átakið „Allir vinna“.“

Síðar skrifar Björn Birgisson:

„Vissu Sjálfstæðismenn um þennan vilja Guðrúnar þegar hún var kjörin formaður flokksins?

„Ná þarf sem hagstæðustu samningum við Evrópusambandið fyrir allar atvinnugreinar og almenning og leggja niðurstöðuna í dóm kjósenda í þjóðaratkvæðagreiðslu.““


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: