- Advertisement -

Yfirstéttin tók sér ofurlaun, verkafólk fær 0

Björgvin Guðmundsson.

Björgvin Guðmundsson skrifar: Mönnum er enn í fersku minni hvernig yfirstéttin rakaði til sín fjármunum, ofurlaunum á undanförnum misserum. ASÍ, undir forustu Gylfa Arnbjörnssonar, barðist vasklega gegn þessum ósóma.

En það eina, sem ríkisstjórnin gerði var að leggja niður kjararáð en engar ofurlaunahækkanir voru afturkallaðar ekki einu sinni launahækkun þingmanna og ráðherra. Laun þingmanna hækkuðu um 75% frá 2013 og fóru í 1,1 milljón kr. á mán. fyrir skatt fyrr utan allar aukagreiðslurnar, húsnæðisstyrki, bílastyrki, skrifstofustyrki, utanferðastyrki, álag vegna formennsku nefnda, vegna forsetastarfa þingsins, vegna formennsku í flokkum o.fl. o.fl. Ráðherralaun hækkuðu um 64% og fóru í 1,8-2 millj. á mánuði fyrir skatt á mánuði. En aukagreiðslur og hlunnindi ráðherra eru miklu meiri en þingmanna.

Þeir þurfa eiginlega aldrei að taka upp veskið. Ríkið,skattgreiðendur greiða fyrir þá.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ég hef enga trú á að ný forusta ASÍ geri neitt í því að reyna að afnema eitthvað af þessum ósóma.

Í framhaldi af ofurlaunum stjórnmálastéttarinnar hafa embættismenn, dómarar, prestar, biskup, forstjórar ríkisfyrirtækja o.fl. fengið ofurlaunahækkanir líka og síðan hefur þetta smitað út um allt þjóðfélagið til einkafyrirtækja en þar hafa forstjórar og millistjórnendur fengið enn meiri hækkanir.

Allt var þetta gert með ákvörðun kjararáðs, sem starfaði undir handarjaðri fjármálaráðuneytisins og á ábyrgð ríkisstjórnarinnar. Í framhaldi af öllum þessum ofurhækkunum setti fjármálaráðherra í fjárlagafrumvarpið, að lífeyrir aldraðra og öryrkja ætti að hækka um 3,4% um næstu áramót. Það þýðir 1.200 kr. raunhækkun lífeyris eftir skatt, þegar búið er að draga verðbólguna frá!!


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: