- Advertisement -

1.600 möffins fyrir 570.000 krónur

Akureyri „Hið árlega Mömmur og möffins fór fram í Lystigarðinum í gær þar sem rúmlega 570.000 krónur söfnuðust en alls seldust 1600 möffins kökur. Peningarnir renna til fæðingardeildar Sjúkrahússins á Akureyri en fyrir upphæðina verður keypt augnskoðunartæki auk blóðskimunartækis fyrir nýbura.“

Þetta kemur fram á vikudagur.is.

Þar segir einnig að skipuleggjendur hátíðarinnar Einnar með öllu á Akureyri segi hátíðina hafa gengið vel hingað til. Blíðskaparveður lék við gesti í gær og mikill fjöldi fólks kom saman á Ráðhústorginu

Síðasti dagur hátíðarinnar er í dag og er fjölbreytt dagskrá. Ein með öllu, rauðkáli og allt undir ásamt kóki í bauk með lakkrísröri kemur þar við sögu með hjálp Goða, Vífilfells og Góu. Þessi árlegi viðburður hefst við Iðnaðarsafnið á Akureyri  kl.13:00.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þá mun ungt fólk spreyta sig á sviðinu á Glerártorgi kl. 15:00 þar sem Söngkeppni unga fólksins fer fram. Vinningshafarnir stíga hugsanlega sín fyrstu skref í átt að frægðarsólinni á Sparitónleikunum í kvöld með stórstjörnunum sem þar koma fram. Tónleikarnir í kvöld verða á leikhúsflötinni fyrir framan Samkomuhúsið og þar koma m.a. fram Kaleo og Stjórnin. Eftir tónleika verður svo boðið upp á flugeldasýningu.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: