- Advertisement -

Pálmatrén úr takt við raunveruleikann

„…verja 140 milljónum króna til að kaupa þessi tvö pálmatré í hjúpum.“

Sanna Magdalena skrifar:

Okey, þó að það gefi manni mikið að horfa á pálmatré, þá gefur það manni þúsundfalt meir að horfa upp á húsnæðisöryggi. Í fréttum kom fram að Reykjavíkurborg og lóðaeigendur munu saman verja 140 milljónum króna til að kaupa þessi tvö pálmatré í hjúpum. Ég held að margir efnaminni borgarbúar þrái að búa á hlýjum, öruggum stað, í stað þess að sjá rándýrar áminningar um suðræna og hlýja stemningu. Stemningu sem þeir geta svo aldrei komist í því þeir hafa aldrei efni á því að komast til sólarlanda.

„Tillagan er óvænt, skemmtileg og djörf,“ segir í umsögn dómnefndarinnar. Ég held að þeir sem hafi ákveðið að ráðstafa þessum fjármunum fyrir hönd Reykjavíkurborgar ættu að stíga úr sínum fína hjúpi og kynnast aðeins betur þeim frásögnum sem borgarbúar í húsnæðiskröggum hafa að segja, þar kemur heldur betur fram hversu mikið líf manns getur breyst á augabragði, þegar leigusalinn ákveður ÓVÆNT að hækka leiguna um þúsundir króna, leigu sem þú réðir ekki einu sinni við til að byrja með, hversu DJÖRF þú þarft að vera til að labba í bankann og óska eftir hærri yfirdráttarheimild og vonast til þess að þjónustufulltrúinn sé SKEMMTILEG en ekki í yfirheyrslustuði um af hverju í ósköpunum þú þurfir á hærri heimild á að halda.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þessi forgangsröðun fjármuna er ekki í takt við veruleikann sem blasir við okkur í dag og ég velti því fyrir mér hvað borgin gæti byggt eða keypt margar íbúðir fyrir fjármagnið sem hún leggur í þetta verkefni? 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: