- Advertisement -

„Það er eflaust margt til í þessu“

Umræðan: Hrafn Magnússon skrifaði:

„Á Samstöðunni var fyrir nokkru rætt um fylgi stjórnmálaflokka og var þar komið sögu að fjallað var um dvínandi fylgi Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar samkvæmt skoðanakönnunum. Báðir flokkarnir virtust vera í mikilli kreppu sem ekki væri útséð hvort héldi áfram eða ekki.

Mér er þessi umræða nokkuð minnistæð. Ekki síst vegna athugasemda frá Páli Ásgeiri Ásgeirssyni blaðamanni og leiðsögumanni um þessa gömlu og grónu stjórnmálaflokka.

Athugasemd Páls Ásgeirs eða ábending var á þessa leið, þó ekki orðrétt.

Fylgistap Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar mun halda áfram einfaldlega vegna þess að kjósendur flokkana væru fyrst og fremst eldra fólk. Hitt væri líka áhugavert að fylgi þessara flokka ætti sér því hliðstæðu í minnkandi sölu lambakjöts á liðnum árum.

Ég segi eins og Steingrímur Hermannsson sagði stundum. „Það er eflaust margt til í þessu.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: