- Advertisement -

Skorar á Ingu Sæland barnamálaráðherra

Umræðan/Facebook: Helga Vala Helgadóttir skrifaði:

Stelpurnar af Laugalandi skiluðu skömminni árið 2022. Ekkert breyttist, kerfið fór í vörn og stöðvaði skil á skömminni. Börnin í Bakkakoti stigu fram í gær og skiluðu skömminni. Nú vil ég skora á Inga Sæland að fara ekki í vörn heldur móttaka skömm alls þessa fólks, sem enn lifir eftir þessar hörmungar, skömm sem stjórnvöld eiga að bera vegna starfsfólks á þeirra ábyrgð. Sá ráðherra sem loksins stendur upp og raunverulega stendur með þolendum ofbeldis mun fá hrós fyrir. Þetta er ekki eitt einstakt mál, þetta eru mörg mál, sem við sem þjóð þurfum að horfast í augu við, viðurkenna og mæta þolendum af virðingu.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: