Eini sjáanlegi tilgangur þessara sjálfskipuðu siðgæðispostula virðist að upphefja sjálfa sig helst í dýrlingatölu og ganga þeir þá svo langt í öfugmælunum að líkja eiturárásum sínum við boðskap Jesús Krists.
Ólafur Þórarinsson.
Ólafur Þórarinsson, Labbi í Mánum, skrifaði:
Við fæðumst með mismunandi hæfni til að takast á við áskoranir lífsins, ég var heppinn að fá margþætta hæfileika sem ég hef nýtt á ótal vegu og þar með við að skemmta og gleðja aðra sem er mér mjög mikils virði.
Því miður eru ekki allir eins heppnir og ég t.d. þegar kynvitund fólks stangast líffræðilega á við það sem líkamsbyggingin gefur til kynna en þeir einstaklingar mæta oft miklu skilningsleysi jafnvel fordómum og hatri í stað þess að vera hvattir og studdir til að finna viðunandi úrlausn eins og við gerum sem beturfer við flesta sem fæðast með andleg eða líkamleg frávik.
…brengluðu hugarórum karlrembunnar…
Þó samfélagsleg viðbrögð hafi stórlagast hafa nú sprottið upp riddarar „réttvísinnar“ og er athyglisvert að þeir hafa gjarnan fæðst með silfurskeið í munni og fengið allt upp í hendurnar, en nýta stöðu sína til að ráðast gegn bræðrum okkar og systrum sem einmitt þurfa hvatningu og stuðning til að geta notið lífsins eins og við hin. Eini sjáanlegi tilgangur þessara sjálfskipuðu siðgæðispostula virðist að upphefja sjálfa sig helst í dýrlingatölu og ganga þeir þá svo langt í öfugmælunum að líkja eiturárásum sínum við boðskap Jesús Krists.
Það sem ég tel hvað mest áhyggjuefni er að þeir beina sínum brengluðu hugarórum karlrembunnar markvist að ungdómnum og því brýnt að spyrna við fótum gegn þessum viðbjóði og upplýsa óharnaða æskuna og benda henni á að þetta eru aðeins pínu pínulitlir huglausir mömmustrákar með öfga minnimáttarkend og ráðast því á þá sem þeir telja að síst geti varið sig svo þeir sjálfir líti út eins og svaka karlar.