- Advertisement -

Ekki er hægt að horfa upp á það ofbeldi sem lágtekjufólk hefur þurft að þola

Frá fundi Seðlabankans fyrr í dag:
„Ég hef oft fylgst með kynningum peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands en sjaldan, ef nokkru sinni, upplifað jafn skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar og á fundinum í dag.“

Umræðan/Facebook: Vilhjálmur Birgisson, formaður SFS og VLFA, skrifaði:

„Ég hef oft fylgst með kynningum peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands en sjaldan, ef nokkru sinni, upplifað jafn skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar og á fundinum í dag. Verkalýðshreyfingin, launahækkanir og kjarasamningar voru nefnd aftur og aftur og tónninn var ekki uppbyggilegur heldur augljóslega í hótunarstíl. Skilaboðin voru einföld: ef forsendur kjarasamninga standist ekki í september og ef verkalýðshreyfingin neyðist til að segja upp samningum muni Seðlabankinn bregðast við með verulegum stýrivaxtahækkunum. Það var ekki annað að skilja en að launafólki væri beinlínis hótað, eins og enginn væri morgundagurinn.

Ég vil minna á staðreyndir. Starfsgreinasamband Íslands, Efling stéttarfélag og Samiðn mótuðu og gerðu síðustu kjarasamninga. Þar var samið um krónutöluhækkun á kaupstaxta sem skilaði lægst launaða fólkinu 23.750 króna hækkun á mánuði, sem jafngildir um 5,6 prósenta hækkun að meðaltali. Aðrir sem ekki tóku laun eftir kaupstöxtum fengu 3,5 prósenta launahækkun. Heildarkostnaðarmat okkar á samningunum var um 4 prósent. Þessir samningar voru gerðir af ábyrgð og í þeirri trú að þeir myndu skapa skilyrði fyrir lækkun verðbólgu og í framhaldinu lækkun vaxta, sem var grundvallarforsenda fyrir stöðugleika heimila og fyrirtækja.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Launaskrið er alls ekki verkalýðshreyfingunni um að kenna.

Samningarnir voru gerðir gegn því að ríki, sveitarfélög, verslun og þjónusta myndu halda aftur af skattahækkunum, gjaldskrárhækkunum og verðlagshækkunum, einmitt til að styðja við þessa vegferð að lægri verðbólgu og lægri vöxtum. Sú forsenda var svikin. Það er staðreynd. Samt virðist Seðlabankinn varla sjá ástæðu til að nefna hvernig gjaldskrár- og skattahækkanir opinberra aðila keyrðu verðbólguna áfram í janúar, jú nefndu reyndar að þær hefðu „komið á óheppilegum tíma“.

Það má nefna 50 prósenta hækkun á fastagjaldi hitaveitu hjá Orkuveitu Reykjavíkur, gríðarlegar hækkanir á flugfargjöldum hjá Icelandair í desember sem leiddu til þess að verðbólga hækkaði um 1,15 prósent á einum mánuði, og ekki síst gjaldskrárhækkun hjá Íslandspósti sem nam allt að 120 prósentum. Sáralítið var sagt um þessar hækkanir á fundinum, þrátt fyrir að þær bitni beint á heimilum og fyrirtækjum um allt land.

Ekki var heldur minnst á að opinberir aðilar eigi stóran þátt í því að verðtryggðar skuldir heimila hafa hækkað um 31 milljarð króna á aðeins tveimur mánuðum. Þetta er raunveruleiki sem fólk upplifir í daglegu lífi en virðist ekki fá rúm í greiningu Seðlabankans.

Launaskrið er alls ekki verkalýðshreyfingunni um að kenna. Í Breiðfylkingunni var samið um 4 prósenta kostnaðarauka, ekki aðeins á almennum vinnumarkaði heldur einnig við ríki og sveitarfélög. Hins vegar liggur fyrir að aðrir hópar sömdu um mun meiri hækkanir og tóku ekki þátt í þessari sameiginlegu vegferð. Launavísitala ríkisstarfsmanna hefur hækkað um 11,3 prósent og launavísitala starfsmanna sveitarfélaga um 11,7 prósent. Rétt er að taka skýrt fram að verkafólk hjá ríki og sveitarfélögum hefur alls ekki fengið slíkar hækkanir, þrátt fyrir að bera byrðarnar af verðbólgu og vaxtahækkunum eins og aðrir.

Við munum ekki samþykkja að lágtekjufólk sé notað sem höggpúði…

Við í verkalýðshreyfingunni vorum svikin, og það illilega. Við lögðum af stað í þeirri trú að allir myndu axla ábyrgð og róa í sömu átt til að ná niður verðbólgu og skapa rými fyrir vaxtalækkanir. Það hafa ríki, sveitarfélög og verslun og þjónusta ekki gert. Hátt vaxtastig leikur fyrirtæki og heimili afar illa en eins og svo oft áður er það verkalýðshreyfingin sem fær sparkið. Á sama tíma tipplar Seðlabankinn á tánum í kringum stjórnvöld, sveitarfélög, verslun og þjónustu, og ekki síst fjármálakerfið sem kvartaði hástöfum á fundinum í dag yfir því að stýrivextir hefðu ekki verið hækkaðir.

Að lokum er mitt mat einfalt og afdráttarlaust. Ef forsendur kjarasamninga standast ekki í september þá ber að segja þeim upp. Það er ekki hægt að horfa upp á það ofbeldi sem lágtekjufólk á almennum vinnumarkaði og hjá ríki og sveitarfélögum hefur þurft að þola. Launafólk hefur staðið við sitt, sýnt ábyrgð og lagt sitt af mörkum til þess að skapa skilyrði fyrir lægri verðbólgu og lægri vöxtum. Á móti hafa loforð verið svikin, kostnaður hlaðist upp, skuldir vaxið og byrðar lagðar á herðar þeirra sem minnst mega sín. Við munum ekki samþykkja að lágtekjufólk sé notað sem höggpúði í baráttu gegn verðbólgu sem aðrir bera meginábyrgð á. Ef samfélagið ætlar ekki að standa við sinn hluta samningsins þá er einfaldlega ekki grundvöllur fyrir því að verkalýðshreyfingin geri það áfram.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: